Bobbýjardætur eru í samstarfi við Dfs.is og Dagskrána. Þær bjóða lesendum að þessu sinni upp á sumarpeysuna Árnýju.
Stærðartafla
Stærðir | XS-S | M | L-XL |
Ummál | 88-90 cm | 100-102 cm | 110-113 cm |
Lengd á bol | 30 cm | 30-32 | 35 cm |
Athugið að fólk er allskonar og því gott að taka mál áður en hafist er handa.
Það má líka stækka eða minnka peysuna með því að gera færri eða fleiri laska útaukningar, ath ef stækkað, gæti þurft meira garn!
GARN OG GARNMAGN
1 þráður Titicaca frá Holst
1 þráður Coast frá Holst
1 þráður Cocktail deluxe frá Go Handmade (notað í rendur)
Garnið fæst hjá bobby.is og Bobby Hveragerði.
ATH!
Titicaca og Coast er prjónað saman tvöfalt. Cocktail er prjónað einfalt.
Stærðir | XS-S | M | L-XL |
Titicaca | 50 gr. | 100 gr. | 100 gr. |
Coast | 100 gr. | 100 gr. | 100 gr. |
Cocktail | 50 gr. | 50 gr. | 100 gr. |
Prjónfesta er ca 7 lykkjur á 10 cm í sléttu prjóni á 8 mm prjóna
ÞAÐ SEM ÞARF:
Hringprjónar 6 mm, 40
Hringprjónn 8 mm, 40 og 60-80 cm
Stoppunál til að ganga frá endum
TÆKNIUPPLÝSINGAR :
Þetta er létt peysa sem hentar vel við kjól, sparibuxur og eða gallabuxur.
Peysan er prjónuð í hring eftir að I-cord snúra hefur verið gerð, sem myndar hálsmál.
Peysan er prjónuð með einum þræði af Titicaca og einum þræði af Coast saman.
Cocktail garnið er notað einfalt.
Peysan er prjónuð frá hálsmáli og niður, útaukningar eru gerðar með því að slá upp á prjóninn sitt hvoru megin við laskalykkjur í annari hvorri umferð þar til að tilskildum lykkjufjölda er náð, þá er stykkinu skipt upp í ermar og bol.
Rendurnar með Cocktail garninu eru val hvers og eins, við höfðum ca 10 cm á milli þeirra eða 16 – 17 umferðir á milli og gerum 4 umferðir af Cocktai garninu, ef ákveðið er að hafa meira af röndum þarf mjög líklega meira af garninu en gefið er upp, eins ef röndum er sleppt þarf að athuga með garnmagn af Titicaca og Coast.
UPPSKRIFT:
Fitjið upp 3 lykkjur á prjóna nr. 6, prjónið I-cord snúru 74 umferðir. Hér er myndband sem sýnir hvernig snúra er gerð.
í síðustu umferð prjónið þrjár lykkjur saman svo úr verði ein 1 lykkja. Prjónið upp lykkjur á hlið snúrunnar þar til að komnar eru 74 lykkjur á prjóninn.
Tengið í hring og prjónið áfram með 6 mm prjóninum 2 umferðir, í seinni umferðinni setjið þið niður laskalykkjurnar, svona:
Umferðin byrjar á miðju baki, prjónið 13 lykkjur, hálft bak, setjið prjónamerki nr 1 í næstu lykkju, prjónið 8 lykkjur, axlastykki, setjið prjónamerki 2 í næstu lykkju, prjónið 27 lykkjur, framstykki, setjið prjónamerki nr 3 í næstu lykkju, prjónið 8 lykkjur, setjið prjónameki nr 4 í næstu lykkju, prjónið 14 lykkjur.
Nú hefst útaukning við allar laskalykkjurnar og um leið er skipt yfir á 40 cm. 8 mm prjón. Aukið út í annarri hverri umferð:
Umferð 1
Prjónið 13 lykkjur, (hálft bak) sláið uppá prjóninn, prjónið laskalykkju, sláið upp á prjóninn.
Prjónið 8 lykkjur,(Axlastykki) sláið uppá prjóninn, prjónið laskalykkju, sláið upp á prjóninn.
Prjónið 27 lykkjur (framstykki) sláið uppá prjóninn, prjónið laskalykkju, sláið upp á prjóninn.
Prjónið 8 lykkjur(Axlastykki) sláið uppá prjóninn, prjónið laskalykkju, sláið upp á prjóninn.
Prjónið 14 lykkjur (hálft bak).
Umferð 2
Prjónið allar lykkjur slétt.
Þessar útaukningar eru endurteknar 15 – 16 – 17 sinnum, það er auðvelt að telja götin sem myndast við laskana til að sjá hversu oft er búið að auka út.
Skiptið yfir á lengri prjón 8 mm þegar ykkur hentar.
Það ættu að vera 194 – 202 – 210 lykkjur á prjóninum við lok útaukningar.
STYKKI SKIPT UPP Í ERMAR OG BOL:
Laskalykkjur fylgja bol þegar skipt er upp
Prjónið hálft bak og laskalykkju, setjið ermalykkjur 38 – 40 – 42 á snúru/band og geymið.
Fitjið upp 8 – 10 – 12 lykkjur undir ermi og prjónið laskalykkju, framstykki og laskalykkju, setjið seinni ermina á band/snúru og fitjið upp 8 – 10 – 12 lykkjur undir ermi, prjónið seinni helming baks ásamt síðustu laskalykkjunni.
Nú ætti að vera 134 – 142 – 150 lykkjur á bolnum.
BOLUR:
Bolur prjónaður í hring þar til hann mælist ca. 26 -29 – 32 cm eða eins og þið viljið hafa hann.
Athugið að flíkin er laust prjónuð og lengist aðeins við þvott!
I-cord affelling:
Þegar lengd á bol er náð, er gerð I-cord affelling, gott að nota prjón 6 mm sem notaður var í snúruna fyrir hálsmálið.
Aðferð við Icord afellingu:
Prjónið 2 lykkjur, setjið þær aftur yfir á vinstri prjón, prjónið eina lykkju framan í hana og takið svo saman seinni lykkjuna og eina af stykkinu, prjónið þær saman með því að fara aftan í þær, setjið lykkjurnar tvær aftur yfir á vinstri prjón og endurtakið þetta þar til búið er að prjóna allar lykkjurnar á stykkinu, slítið frá og dragið spottann í gegnum síðustu tvær lykkjurnar.
ERMAR:
Umferð byrjar undir miðri ermi!
Takið upp helming 4 – 5 – 6 lykkjur, alltaf gott að taka upp eina auka í kverkinni og setjið líka á prjóninn allar ermalykkjurnar, 1 auka í kverkinni og síðustu 4 – 5 – 6 lykkjurnar sem búnar voru til.
Setjið prjónamerki við upphaf umferðar.
Ermalykkjur ættu að vera 46 – 50 – 54
Ef teknar voru upp aukalykkjur eru þær prjónaðar saman með fyrstu og síðustu lykkju á erminni.
Prjónið ermina þar til að hún mælist ca 38 – 41 – 44. ATH! Ermin lengist í þvotti eins og öll peysan
Fellið af eins og á bol með I-cord affellingu
FRÁGANGUR:
Gangið vel frá öllum endum.
Þvoið flíkina í höndum upp úr ullarsápu og skolið.
Kreistið mesta vatnið úr flíkinni, gott að nota handklæði til þess.
Leggið til þerris á handklæði.