17.8 C
Selfoss

Plokkdagurinn – allir með!

Vinsælast

Sunnudaginn 27. apríl er svokallaður Plokkdagur á Íslandi. Rótarýhreyfingin á Íslandi gengst fyrir hreinsunarátaki sem nefnist Plokkdagurinn, þar sem íbúar eru hvattir til þess að horfa í kringum sig, taka hendur úr vösum og plokka upp rusli. Það er í valdi hvers Rótarýklúbbs hvernig er staðið að þessu hreinsunarátaki. Ísland er einstaklega fallegt land en við gætum staðið okkur miklu betur í því að hreinsa til í kringum okkur, það á bæði við um íbúa í þéttbýli og dreifbýli. Um þessar mundir er mikið talað um fæðuöryggi sem minnir okkur á mikilvægi landbúnaðar. Sem betur fer eru margir bændur til mikillar fyrirmyndar hvað umgengni varðar en aðrir ganga ótrúlega illa um. Rúlluplast er á girðingum, vélarusl sem hætt er að nota stingur í augun. Á sama hátt eru brotalamir í umgengninni í þéttbýli, gömul bílhræ og alls kyns drasl á víðavangi. Í umgengismálum standa frændur okkar Færeyingar sig margfalt betur en við. Það er unun um að aka um og sjá hve snyrtilegt er þar. Það er líklega of snemmt að draga fram málningardósirnar og pensilinn en alveg þess virði að nýta þetta tækifæri til þess að taka til í kringum okkur.

Rótarýklúbbur Rangæinga tekur þátt í þessu átaki í fyrsta sinn og er það gert í samstarfi við sveitarfélög í sýslunni. Allir geta tekið þátt í þessu hreinsunarátaki, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir, skólar, fjölskyldur og einstaklingar. Plokkað er í nærumhverfi eða á fyrir fram ákveðnum svæðum. Stillum saman strengi, látum hendur standa fram úr ermum og tökum til í kringum okkur. Tengiliðir sveitarfélaganna Rangárþings eystra og Rangárþings ytra eru Magnús Þór Einarsson og Ösp Viðarsdóttir. Gerum Plokkdaginn skemmtilegan og sameinumst um að gera fallega sýslu enn fegurri. Einar Bárðarson sem er Rótarýfélagi og er upphafsmaður Plokksins hér á landi segir: „Hreint land, fagurt land er gamalt og gott slagorð. Við höfum fengið það að láni í plokkið. Vertu með okkur í baráttunni við sorp í lausagangi. Virkjum nágranna og vini okkar og höldum lóðinni, götunni, hverfinu, bænum, borginni, já og landinu öllu hreinu og fínu.“ Góð hvatning það.

Ísólfur Gylfi Pálmason,

Forseti Rótarýklúbbs Rangæinga.

Nýjar fréttir