17.8 C
Selfoss

Gaman að deila sönggleðinni með Mýrdælingum

Vinsælast

Sumarið 2023 var Kammerkór Tónskóla Mýrdalshrepps stofnaður af Alexöndru Chernyshovu, óperusöngkonu, tónskáldi og tónskólastjóra í Vík. 

Til að byrja með voru fjórtán í Kammerkórnum á fyrsta skólaárinu en kórinn stækkaði á þessu ári og í dag eru tuttugu og tveir söngvarar: tíu sópranar, sjö altó, tveir tenórar og þrír bassar.

Kammerkórinn starfar undir faglegri stjórn Alexöndru Chernyshovu sem er einnig kórstjóri. Einu sinni í viku eru æfingar í sal tónskólans og einu sinni í mánuði er æfing annars staðar en í tónskólanum. „Á þessu ári vorum við t.d. með æfingu í Hótel Vík og Hótel Kötlu, Víkurkirkju, Leikskálum og Íþróttamiðstöðinni í Vík, og á síðasta ári voru einnig söngæfingar í Dýrhólaeyjavitanum og Bátasafninu í Vík,“ segir Alexandra.

Ljósmynd: Aðsend.

Kammerkórinn hefur á þessum starfsárum lagt sitt af mörkum til menningarstarfs í Vík. Hann hefur sungið á bæjarhátíðum, við menningarstaði, á viðburðum og tónleikum. Það eru tónleikar eins og Söngleði Kammerkórsins í Icewear, 90 ára afmæli Víkurkirkju, Sumarið kemur tónleikar með Gissuri Páli, tenór á menningarhátíðinni Vor í Vík, Jólagleði og Jólaglögg Kammerkórs í Halldórskaffi, Aðventuhátíð Mýrdælinga í Víkurkirkju. Einnig hefur hann sungið á stórum jólatónleikunum með Guðnýju Árnýju Karlsdóttur, söngkonu.

Á undanförnum árum hefur undirleikur á tónleikunum verið í höndum frábærra tónlistarmanna eins og Kjartans Valdemarssonar, Nínu Margrétar Grímsdóttur píanóleikara, Álvaro Sanchez og Orra Guðmundssyni gítarleikara.

Ljósmynd: Aðsend.

Á sumardaginn fyrsta verður kórinn með tónleika á menningarhátíðinni Vor í Vík sem ber heitið „Sumardaginn fyrsti“. Á tónleikunum verða flutt lög eftir íslensk tónskáld í bland við þekkt erlend tónskáld. Einsöngvarar á tónleikunum eru Einar Freyr Elínarsson og Jónas Erlendsson. Undirleikarar á tónleikunum eru píanóleikarinn Einar Bjartur Egilsson, Orri Guðmundsson gítarleikari og Alvaro Sanchez á rafmagnsgítar. Alexandra Chernyshova stjórnar kammerkórnum og syngur einnig einsöng Summetime úr óperunni Porgy and Bess eftir Georg Gershwin.

Tónlistarskólanemendur Tónskóla Mýrdalshrepps ásamt tónlistarkennurum flytja lagið Óður til gleðinnar eftir Ludwig van Beethoven við upphaf tónleikanna.

Það má heldur ekki gleyma að Sinfóníuhljómsveit Íslands kemur til Víkur þann 1. maí og kammerkórinn mun syngja með. 

„Þetta er mikil vinna og líka mjög gaman að deila sönggleðinni, söngmenntuninni og söngreynslu með Mýrdælingum“ segir Alexandra að lokum og brosir. 

Nýjar fréttir