17.8 C
Selfoss

Fyrsti blaktitill Laugdælastúlkna á HSK móti

Vinsælast

Héraðsmót unglinga í blaki 16 ára og yngri var haldið á Hvolsvelli 11. apríl sl

Þrjú lið tóku þátt í stúlknaflokki, en mótið var nú haldið í 25. sinn. Lið Laugdæla varð HSK meistari í fyrsta sinn í sögu keppninnar. Með liði Laugdæla léku einnig stúlkur úr nærsveitum.

Fimm lið kepptu í drengjaflokki og þar varð Dímon HSK meistari fjórða árið í röð.

Úrslit í stúlknaflokki:

1. sæti Laugdælur – 6 stig

2. sæti Dímon A – 3 stig

3. sæti Dímon B – 0 stig

Úrslit í drengjaflokki:

1. sæti Dímon A – 12 stig

2. sæti Laugdælir – 8 stig

3. sæti Hekla – 5 stig

4. sæti Dímon B – 3 stig

5. sæti Hamar – 2 stig

Nýjar fréttir