Íslandsmót Judosambands Íslands var haldið í sal Judodeildar Ármanns í Laugardal Reykjavík laugardaginn 12. apríl sl og var þátttaka mjög góð, keppendur voru 110 í hinum ýmsu aldurs- og þyngdarflokkum.
Tveir keppendur voru frá Judofélagi Suðurlands, Agla Ólafsdóttir og Arnar Helgi Arnarsson, og gekk þeim vel.
Agla Ólafsdóttir keppti í flokki undir átján ára og vann gullverðlaun og þar með sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil og örugglega ekki þann síðasta.
Þá keppti Agla upp fyrir sig í aldursflokki undir U21 og tók þar silfurverðlaun, býsna góður dagur hjá Öglu.
Arnar Helgi Arnarsson keppti í þetta skipti í flokki +100 kg og náði 3. sæti.