Kórinn Vokalkompagniet frá Kaupmannahöfn er á ferðalagi um Suðurlandið í þessari viku. Kórinn hefur starfað í 30 ár, en þau syngja popptónlist acapella, oft með skandínavísku ívafi.
Vokalkompagniet er að heimsækja landið í annað sinn, en þau voru hér fyrst árið 2012. Í þeirri ferð héldu þau meðal annars tónleika með Flugfreyjukórnum og spjölluðu við fréttakonu Kastljóss, sem var með umfjöllun um kórinn.
Arna Lára Pétursdóttir úr Ásahreppi er kórfélagi í danska kórnum: „Ég byrjaði í kórnum nokkrum árum eftir að þau voru hér síðast, og mörg hafa þau talað um að vilja koma aftur. Þegar ákvörðunin var tekin um að láta af því verða að fara í Íslandsferð, hafði ég strax samband við Stefán Þorleifsson stjórnanda Sunnlenskra radda, og óskaði eftir því að þau myndu halda með okkur tónleika. Í þeim kór eru margir gamlir kórfélagar mínir úr Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands sem ég söng í undir stjórn Stefáns á árunum 2005-9, meðal annars á eftirminnilegum Queen tónleikum í Iðu. Ég hlakka mikið til að eiga eftirmiðdegi með Sunnlenskum röddum og gestum í Hvolnum. Á dagskrá hjá okkur í Vokalkompagniet eru meðal annars lög eftir flott norrænt tónlistarfólk á borð við Blaue Blume, Highasakite, Björk og Ásgeir Trausta, og við syngjum á bæði ensku og dönsku, og jú, eitt lag á finnsku. Ég vona að sem flestir mæti á þessa flottu vortónleika.“
Vokalkompagniet heldur tónleika ásamt heimamönnum í Sunnlenskum röddum í Hvolnum, Hvolsvelli, laugardaginn 19. apríl kl. 16:00. Miðaverð er 2500 kr., miðar eru seldir í hurð.