17.8 C
Selfoss

Sjón er sögu ríkari – Forvarnardagur ML og sviðsett slys

Vinsælast

Sælir veriði kæru Sunnlendingar.

Miðvikudaginn 9. apríl fengu nemendur Menntaskólans að Laugarvatni smá dagamun í skólanum þar sem forvarnardagurinn Ábyrg í umferðinni var þann dag. Forvarnarfulltrúi skólans, slökkviliðsmaður og ökukennarinn María Carmen Magnúsdóttir höfðu skipulagt fróðlega og skemmtilega dagskrá fyrir daginn og fengu til liðs við sig úrvalslið sem samanstóð af Samgöngustofu, Lögreglu, Neyðarlínunni 112, Brunavörnum Árnessýslu og sjúkraflutingum. Fyrst á dagskrá voru fyrirlestrar og kom Bjarklind Björk Gunnarsdóttir frá Samgöngustofunni og ræddi um mikilvægi þess að fara varlega í umferðinni. Þar á eftir kom Hilmar Sigurjónsson ásamt Kolbrúnu Evu Haraldsdóttur Gränz frá Lögreglu Suðurlands og var þriðji og síðasti fyrirlesturinn frá Sigríði Helgu Ástþórsdóttur sem kom frá Neyðarlínunni 112. 

Eftir fyrirlestrana var leikið neyðarsímtal sýnt og fóru svo allir út á skólaplanið þar sem var sviðsett bílslys. Þar fengu nemendur að fylgjast með þegar viðbragðsaðilar koma að slysstað og Arndís Soffía Sigurðardóttir frá samfélagslögreglunni lýsti atburðarásinni fyrir nemendum. Fyrst mættu Hilmar og Kolbrún frá lögreglunni til að kanna stöðuna, þar á eftir fylgdu Bjarni Dan, Eyjólfur Jónsson, Jón Snæbjörnsson og María Carmen Magnúsdóttir frá Brunavörnum Árnessýslu og hófust handa við að klippa út farþega sem fastur var inni í bílnum. Næst komu sjúkraflutningamenn frá HSU, þeir Arnar Högni og Sævar Kristjánsson, og hlúðu að slösuðum. Nemendur sáu um leik og smink fórnarlamba í slysinu með glæsibrag og að loknum björgunaraðgerðum fóru allir aftur inn í skólann og var opnað fyrir spurningar til viðbragðsaðila. 

Ljósmynd: Aðsend.

Sem hluti af umferðarfræðslu fyrir framhaldsskólanemendur var þessi dagskrá haldin í annað sinn og er stefnt að því að hún verði að minnsta kosti á þriggja ára fresti með það markmið að nemendur sýni ábyrgð í umferðinni og þannig fækki umferðaróhöppum og slysum þar sem það er mikil ábyrgð fólgin í því að aka og vera hluti af umferðinni.

Elena R. Marquez Gunnlaugsdóttir,

ritnefndarformaður nemendafélagsins Mímis.

Nýjar fréttir