Eins og undanfarin ár verður messa í Selfosskirkju á páskadagsmorgun kl. 8:00.
Eftir messu býður sóknarnefnd Selfosskirkju öllum kirkjugestum upp á góða hressingu. það hefur verið aðdáunarvert að sjá hve margir mæta til messu á páskadagsmorgun og staðfestir það þá góðu kirkjusókn sem almennt er í Selfosskirkju. Sóknarnefndin mun taka vel á móti kirkjugestum.
Á laugardaginn 26. apríl frá kl. 10:00 til 14:00 verður hinn árlegi hreinsunardagur Selfosskirkju. Undanfarin ár hefur sá háttur verið hafður á að efna til hreinsunar og tiltektar í kirkjugarði og á lóð kirkjunnar. Það er ánægjulegt að sjá fólk koma og taka þátt í þessu verkefni og hreinsa leiði ástvina í leiðinni. Stór gámur verður á svæðinu. Boðið verður upp á hressingu í hádeginu. Þau sem geta eru beðin um að hafa með sér garðáhöld. Sóknarnefndin, aðal- og varamenn, fólk úr kirkjukórnum og aðrir starfsmenn kirkjunnar taka vel á móti ykkur.
Björn Ingi Gíslason,
formaður sóknarnefndar.