17.8 C
Selfoss

Greipur og Egill Freyr grunnskólameistarar í glímu

Vinsælast

Grunnskólamót í glímu fór fram í Ármannsheimilinu í Reykjavík sunnudaginn 13. apríl sl. Ellefu keppendur af sambandssvæði HSK úr Bláskógaskóla og Reykholtsskóla tóku þátt og kepptu af krafti fyrir sína skóla.

Tveir glæsilegir grunnskólameistaratitlar komu í hlut liðs HSK þegar Greipur Hilmarsson varð grunnskólameistari í 5. bekkjarflokki drengja og Egill Freyr Traustason í 7. bekkjarflokki drengja.

Aðrir keppendur stóðu sig einnig með prýði. Í 5. bekkjarflokki stúlkna keppti Helma Fanney Línadóttir upp fyrir sig og stóð sig með prýði og hafnaði í 2. sæti. Í sama flokki drengja náði Skarphéðinn Ingi Sveinsson einnig frábærum árangri og lenti í 2. sæti.

Í 6. bekkjarflokki stúlkna urðu Ásgerður Saga Stefánsdóttir og Kristín María Sigurðardóttir jafnar í 2.–3. sæti, en í flokki drengja varð Víkingur Karl Línason í 2. sæti.

Í 7. bekkjarflokki drengja fylgdu Torfi Guðjón Nílsson og Fjölnir Eyfjörð Ottósson Agli Frey eftir og tóku 2. og 3. sætið.

Loks náði Björgvin Guðni Sigurðsson 3. sæti í 10. bekkjarflokki drengja og Guðjón Óli Inguson varð þar í 4. sæti.

Uppskera æfinga sýndi sig og keppendur geta verið stoltir af sinni frammistöðu á mótinu.

114. Íslandsglíman

Næsta stóra glímumót er Íslandsglíman, sem haldin verður í 114. sinn laugardaginn 10. maí klukkan 13:00 í íþróttahúsi Kennaraháskólans í Reykjavík. Þar verður keppt um hin virtu verðlaun: Grettisbeltið í karlaflokki og Freyjumenið í kvennaflokki.

HSK mun eiga fulltrúa á mótinu og eru ungir glímukeppendur og allir áhugasamir hvattir til að mæta, fylgjast með og hvetja okkar helsta glímufólk áfram.

Nýjar fréttir