Í gömlu gróðurhúsi í Hveragerði er veitingastaðurinn Rósakaffi. Hann hefur í mörg ár boðið upp á fjölbreytt matarúrval þar sem hægt er að fá hefðbundinn sjoppumat hvenær sem er á opnunartíma og heimilismat í hádeginu. Einna vinsælast í Rósakaffi er eitt glæsilegasta kökuhlaðborð landsins sem boðið hefur verið upp á á nánast hverjum sunnudegi frá 2022.
Notast við gamlar fjölskylduuppskriftir
Hjónin Jóna Sigríður Gunnarsdóttir og Guðmundur Magnús Nielsen reka Rósakaffi. Þau segjast hafa velt því fyrir sér í einhvern tíma að byrja með kökuhlaðborð áður en þau létu verða af því.
„Okkur fannst vanta í flóruna að bjóða upp á þessar gömlu, góðu tertur og finnst mikilvægt að halda þeim við og gera þær aðgengilegri fyrir fólk að prófa. Mér varð svo oft hugsað til kaffihlaðborðanna hjá kvenfélaginu í minni gömlu heimasveit, Vopnafirði, en þar hafa alla tíð landsins bestu bakarar safnast saman (algjörlega hlutlaust mat) og mér fannst þetta alltaf svo stórkostlegt í minningunni. Mamma, amma heitin og móðursystir mín eru svo einhverjar snjöllustu húsmæður sem ég hef kynnst og ég er svo heppin að luma á uppskriftabókinni hennar mömmu sem geymir þeirra bestu uppskriftir. Flestar uppskriftirnar sem við notum eru einmitt frá þeim og eru af tertum sem hafa leikið aðalhlutverk í öllum veislum í okkar fjölskyldu,“ segir Jóna í samtali við Dfs.is.

Ljósmynd: Aðsend.
Eins og að koma í fermingarveislu um 1980-1990
Venjulega eru um 17-20 tegundir af kökum og tertum á hlaðborðinu. Sumar eru alltaf og svo eru aðrar sem skiptast á.
Vinsælasta tertan er líklega marengsbomban en fast á hæla hennar er gamaldags peruterta. „Sú sem hefur vakið hve mesta athygli er samt líklega rúgbrauðstertan en það er mjög misjafnt hvort fólk þekki hana en hún er í miklu uppáhaldi hjá okkar fjölskyldu,“ taka hjónin fram.
Hjónin segja að oft skapist líflegar umræður á hlaðborðunum því að fólk tengi mjög sterkar tilfinningar við sumar af tertunum. „Mörgum finnst þeir komnir aftur í fermingarveislu um 1980-1990 og terturnar einhvern veginn kalla fram tilfinningar og minningar tengdar þeim árum. Okkur þykir afar vænt um það því það er einmitt það sem við vonuðumst til.“

Ljósmynd: Aðsend.
Skipuleggja hlaðborðið alla vikuna
Í upphafi ætluðu Jóna og Guðmundur bara að prófa og kanna viðbrögðin við svona hlaðborði og gefa því sumarið en viðbrögðin voru það góð að það var ekki hægt að hætta. „Við höfum því haft kaffihlaðborð alla sunnudaga allt árið nema rétt yfir verstu vetrartíðina þegar veður og færð eru hvað mest að stríða,“ segja hjónin og segjast ekki vita til þess að fleiri staðir séu að bjóða upp á eins flott kökuhlaðborð.
Aðspurð að því hversu langan tíma það taki að undirbúa svona hlaðborð segjast hjónin alltaf vera í undirbúningi fyrir það.
„Um leið og við lokum á sunnudegi erum við farin að skipuleggja það næsta. Það þarf að ákveða tegundir, panta inn og þræða verslanir eftir því sem þarf til. Svo tekur við bakstur en við byrjum oft að baka botna á fimmtudögum. Sumar tertur þarf að setja á daginn áður og aðrar er betra að setja á eins seint og hægt er. Við erum t.d. alltaf að skreyta brauðterturnar og sprauta rjóma rétt fyrir opnun á hlaðborðinu. Það getur alveg verið stressandi en þetta smellur einhvern veginn alltaf saman,“ segja hjónin.

Ljósmynd: Aðsend.
Næsta hlaðborð á sumardaginn fyrsta
Fyrir utan sunnudaga hafa Jóna og Guðmundur haft aukahlaðborð inn á milli eins og 17. júní, á Blómstrandi dögum og á sumardaginn fyrsta.
Næsta kaffihlaðborð verður einmitt sumardaginn fyrsta kl. 13-17. „Það er alltaf gaman að fagna sumri í Hveragerði og alveg skothelt plan að kíkja í Garðyrkjuskólann, næla sér í sumarblóm í Garðplöntusölunni Borg og smella sér svo í hnallþórurnar á Rósakaffi,“ segja Jóna og Guðmundur.
Vinsældir hlaðborðsins hafa aukist jafnt og þétt og aðsóknin er orðin þannig að það borgar sig að bóka borð fyrir fram til að vera viss um að komast að og þurfa ekki að bíða eftir borði.
„Fyrsta kaffihlaðborðið var 26. júní 2022 og því eru þetta að nálgast þrjú ár sem við höfum verið í þessu. Hlaðborðin eru því komin vel á annað hundraðið. Þetta er með því skemmtilegasta sem við fjölskyldan gerum svo við höldum áfram á meðan við erum með Rósakaffi,“ segja Jóna og Guðmundur að lokum.