6.1 C
Selfoss

Flóknar tilfinningar þegar harmleikur á sér stað í litlu bæjarfélagi

Vinsælast

„Þegar harmleikur á sér stað í litlu samfélagi, losna úr læðingi flóknar tilfinningar og sterkar. Slíkir atburðir hafa djúpstæð áhrif á allt samfélagið. Fólk getur fundið fyrir ótta, reiði, samúð, sorg og svo margs annars sem einkennir mennskuna. Í slíkum aðstæðum er mikilvægt að samfélagið sýni samstöðu, styðji þá sem eiga um sárt að binda og gæti þess að virða einkalíf þeirra sem standa nærri atburðinum.“

Þetta segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, í pistli á heimasíðu sinni um harmleikinn sem átti sér stað á dögunum þar sem íbúa í Þorlákshöfn var ráðinn bani.

Hætta á sögusögnum og óþarfa ágiskunum

Ísland er lítið land þar sem fólk þekkir vel til hvers annars. Það getur leitt til sterkra tilfinningaviðbragða og hættu á sögusögnum og óþarfa ágiskunum. Elliði segir lykilatriði að sýna þeim virðingu sem eru í sorg og að gefa þurfi þeim rými til að vinna úr áfallinu á sínum hraða.

„Félagslegur stuðningur, eins og að veita huggunarorð, bjóða fram aðstoð eða einfaldlega vera til staðar, getur skipt sköpum fyrir syrgjendur,“ segir Elliði í pistli sínum.

Fjölmiðlar gæti hófs í umfjöllun

Elliði nefnir kröfur almennings til fjölmiðla og að það sé þeirra hlutverk að veita fólki útskýringar og skilning á atburðum og atburðarásum. Hann leggur áherslu á að fjölmiðlar gæti hófs í umfjöllun sinni og þá sérstaklega þegar kemur að hálfkveðnum vísum sem geta leitt til rangra ályktana.

„Sérstaklega ber að forðast að ýta undir getgátur sem geta aukið vanlíðan þeirra sem standa nærri atburðinum. Á sama hátt er nærsamfélagið óöruggt og vill frið til að vinna úr áfallinu og sína þeim sem nær standa stuðning.“

Hlutverk lögreglu og réttarkerfisins

Í pistli Elliða segir líka að mikilvægt sé að almenningur styðji við lögregluna og virði hana á meðan hún rannsakar málið.

„Óstaðfestar getgátur eða óþolinmæði gagnvart framgangi rannsóknarinnar geta valdið aðstandendum sárum og jafnvel spillt fyrir réttarferlinu. Samfélagið ætti því að halda aftur af getgátum og leyfa yfirvöldum að vinna sína vinnu. Hluti af þeirri vinnu er að upplýsa um framgang málsins og forsendur. Hér er ekki dregið úr mikilvægi þess að lögregla standi þar skjótt og vel að málum.“

Samfélagið verði að standa saman

„Eftir voveiflegan atburð getur samfélagið fundið leiðir til að standa saman og leitað stuðnings hjá hverju öðru. Best er að nálgast hann með yfirvegun, virðingu og samhug. Með því að styðja aðstandendur, leyfa lögreglunni að vinna sína vinnu og gæta ábyrgðar í upplýsingamiðlun getur samfélagið hjálpað sér sjálfu og þeim sem eru hvað mest að þjást,“ segir Elliði að lokum.

Nýjar fréttir