Mottumars er annað af tveimur stærstu árvekniátökum Krabbameinsfélagsins þar sem áhersla er lögð á vitundarvakningu og meðvitund landsmanna um krabbamein, áhættuþætti og þjónustu Krabbameinsfélagsins út um allt land.
Í ár er sjónum beint að lífstílstengdum þáttum því staðreyndin er sú að að minnsta kosti þriðja hvert krabbameinstilvik tengist lífsstíl. Þó að enginn sé öruggur er hægt að draga úr líkum á krabbameinum með heilsusamlegum lífsstíl.
Krabbameinsfélag Árnessýslu tekur virkan þátt í að velja heilbrigðan lífstíl og í góðri samvinnu við fyrirtæki á svæðinu er boðið upp á fjölmarga möguleika til að velja hollari og heilsusamlegri lífstíl.
GYM800 er alhliða líkamsræktarstöð sem býður upp á fjölbreytta hópatíma, fullbúinn æfingasal og aðgengi að æfingaaðstöðunni allan sólarhringinn. Í Mottumars er tilboð á mánaðarkort á aðeins 10.900 kr, sem felur í sér aðgang að öllum opnum tímum og líkamsræktarsalnum og/eða 7.900 kr, sem felur í sér aðgang að líkamsræktarsalnum (open gym).
Yoga Sálir bjóða félagsmönnum frítt í alla opna tíma í stundatöflunni í mars auk 20% afslátt í öll lokuð námskeið í mars.
BOX800 er persónuleg æfingastöð sem leggur áherslu á að auka lífsgæði fólks í samfélaginu. BOX800 býður 25% afslátt af mánaðarkortum út mars auk þess að bjóða öllum á opnar æfingar laugardaginn 22. mars þar sem aðgangseyrir er 1500 kr og mun ágóðinn allur renna til starfsemi Krabbameinsfélags Árnessýslu. Frekari upplýsingar og fyrirspurnir fara fram á Facebook-síðu BOX800.
Vatn og heilsa býður frían prufutíma í mars, ýmist í morgunhóp, gigtarhóp eða Water HIIT. Vatnsleikfimi er skilgreind sem hreyfing í vatni sem viðheldur og bætir líkamlegt og andlegt þrek. Þyngdarleysi vatnsins gerir allar hreyfingar auðveldari og dregur nánast úr öllu álagi á liðum líkamans. Tímatöflu Vatns og heilsu má finna á heimasíðunni www.vatnogheilsa.is og áhugasamir eru hvattir til að senda póst á sigrun@vatnogheilsa.is
Krabbameinsfélag Árnessýslu býður upp á tvo fyrirlestra í mars sem miða að heilbrigðum lífstíl. Annars vegar kemur Geir Gunnar næringarfræðingur til okkar 11. mars og fræðir okkur um heilbrigðar matarvenjur og hins vegar kemur Elísabet Kristjánsdóttir íþrótta- og heilsufræðingur til okkar 27. mars og fræðir okkur um hreyfingu og heilbrigði.
Fyrirlestrarnir eru kl. 16:30, eru öllum opnir og aðgangur frír.
Hvetjum alla til að mæta og fræðast í átt að betri heilsu.
Krabbameinsfélag Árnessýslu, í samstarfi við öfluga og sterka samstarfsaðila, hvetur alla til að huga að lífstílnum og velja þá kosti sem dregið geta úr líkum á krabbameini, kosti sem aukið geta lífsgæði og eru líklegri til að efla heilbrigði.
Lesa má allt um Mottumars-átak Krabbameinsfélags Íslands á vefsíðunni www.mottumars.is