Enski sóknarmaðurinn Harley Willard hefur samið við knattspyrnudeild Selfoss til eins árs. Hann kemur á frjálsri sölu til félagsins en hann lék síðast með KA í Bestu deildinni.
Willard kom fyrst til landsins árið 2019 þegar hann samdi við Víking Ólafsvík. Þar spilaði hann þrjú tímabil áður en hann gekk í raðir Þórs á Akureyri. Hann skipti yfir í KA eftir eitt tímabil þar og hefur leikið með þeim gulklæddu á Akureyri síðustu tvö tímabil.
Willard er sóknarsinnaður miðjumaður sem getur einnig leyst stöðu kantmanns. Hann hefur leikið yfir 170 leiki hér á landi og skorað í þeim yfir 60 mörk og lagt upp fjölda marka.
„Eftir að hafa átt í mjög góðum viðræðum við Selfoss þá var ekki spurning í huga að semja við félagið. Aðstæður hér eru til fyrirmyndar, það er flott fólk í kringum félagið, liðið er ungt og þakið er hátt,” segir Harley.
„Ég er búin að eiga frábæran tíma á Akureyri undanfarin ár en mér fannst vera kominn tími á breytingar og ég er spenntur að flytja á Selfoss”, segir Harley að lokum.