6.7 C
Selfoss

Grunnur að bata

Vinsælast

Krabbameinsfélag Árnessýslu hefur hlotið styrk úr Velunnarasjóði Krabbameinsfélags Íslands til að efla þjónustu í heimabyggð og bjóða upp á námskeið fyrir einstaklinga sem nýlega eru greindir með krabbamein og einstaklinga sem eru í krabbameinsmeðferð.

Námskeiðið, sem unnið er í góðri samvinnu við Leirljós Handverk og Yoga Sálir, ber heitið Grunnur að bata og felur í sér prógram sem miðar að andlegri, líkamlegri, og félagslegri heilsu. Námskeiðið er öllum að kostnaðarlausu en mælst er til að þátttakendur séu skráðir félagsmenn í Krabbameinsfélagi Árnessýslu og greiði árgjald að upphæð 3.500 kr.

Þátttakendur mæta á mánudögum kl. 15:00 í jóga í Yoga Sálir að Eyravegi 35 á Selfossi þar sem fram fer hugleiðsla og slökun, á miðvikudögum kl. 10:00-12:00 í Leirljós handverk að Hrísmýri 5 á Selfossi þar sem fram fer leirhöndlun og leirmótun ásamt öðrum uppbyggilegum listformum til að vinna að listrænum og sálrænum þáttum. Sálgæsla, fræðsla og stuðningur er hluti af námskeiðinu sem og félagsleg samvera og sameiginleg máltíð. Þátttakendur mæta einnig einn föstudag í mánuði kl. 09:30 í félagsaðstöðuna að Eyravegi 31 á Selfossi þar sem fram fer fræðsla og almennt spjall.

Kynningarfundir varðandi námskeiðið verða haldnir miðvikudaginn 12. febrúar kl. 16:00 og miðvikudaginn 19. febrúar kl. 16:00 í Leirljós Handverk að Hrísmýri 5 á Selfossi. Þar gefst tækifæri á að fá frekari upplýsingar um innihald og uppsetningu námskeiðsins og skrá sig til þátttöku.

Stefnt er að því að námskeiðið hefjist miðvikudaginn 26. febrúar kl. 11:00

Frekari upplýsingar má einnig fá með því að senda okkur tölvupóst á arnessysla@krabb.is, senda okkur skilaboð í gegnum messenger eða hafa samband í síma 482 1022 á dagvinnutíma.

Nýjar fréttir