5.6 C
Selfoss

Fleiri en sextíu innsendingar í tónlistarkeppnina „Flygill“

Vinsælast

Þann 7. febrúar héldu allir tónlistarskólar landsins upp á Dag tónlistarskólanna. Í tónlistarskóla Mýrdalshrepps var Dagur tónlistarskólanna haldinn í annað sinn með hátíðardagskrá og tónlistarkeppninni „Flygill“. Í fyrsta skipti, að frumkvæði Alexöndru Chernyshovu tónskólastjóra, var haldin tónlistarkeppni fyrir nemendur tónskólans á síðasta ári. Tónlistarnemendur sem tóku þátt í keppninni „Flygill“ á þessu ári voru á aldrinum 3 ára til 91 árs. Keppnin var í þremur flokkum: Besta teiknimynd, Besta ævintýrasaga/ljóð og besta frumsamda lagið, í þremur aldursflokkum.

Á þessu ári voru sextíu innsendingar í tónlistarkeppnina, og heiðursdómari var Anna Björnsdóttir tónlistarkona. „Það er gaman að segja frá því að haustið 2023, að frumkvæði Önnu, fékk Tónskóli í Vík að eiga Flygil – Yamaha, sem stendur í sal tónskólans og er mikið elskaður og mikið nýttur í starfi skólans,“ segir Alexandra.

Fyrir bestu teiknimynd í yngsta flokki fengu tvíburasysturnar Birgitta Ósk og Andrea Ósk Gunnarsdætur verðlaun. Í flokki unglinga fékk Angelina Rutkowska verðlaun fyrir bestu teiknimyndina.

Fyrir besta frumsamda lagið í barnaflokki fengu verðlaun Kjartan Týr Moreno Þorgerðarson fyrir lagið Laufblöðin fljúga upp í himininn og Hilmir Blær Jónsson fyrir lagið Himinninn í glimmerinu eða Glóandi stjarna himinsins. Í unglingaflokki fengu Freyja Dögg Atladóttir Waagfjörð verðlaun fyrir lagið Spuni og Harpa Sólilja Ólafsdóttir fyrir lagið Rósagarðurinn.

Í ævintýratónlistarsögukeppni barna vann León Ingi Cárcamo Hörpuson með söguna Fimm vinir í Tónlistarlandi, og í flokki fullorðinna vann Reynir Ragnarsson með tónlistarljóðið Minning.

Hátíðin byrjaði 6. febrúar með bíókvöldi fyrir tónlistarnemendur, tónlistaratriði og poppi. Síðan 7. febrúar byrjaði hátíðardagskrá með masterklössum, sem voru í höndum tónlistarkennaranna Orra Guðmundssonar, Álvaro Sánchez Bernal og Katrínar Waagfjörð fyrir tónlistarnemendur. Eftir það voru tónleikar með nemendum tónskólans sem tóku stigspróf í vetur.

Allir fengu glaðning og viðurkenningarskjal fyrir þátttöku í tónlistarkeppni Flygill. Eftir tónleikana voru vöfflur og kaffi fyrir gesti í boði tónskólans. Hátíðardagskránni lauk með samsöng Syngjum saman, þar sem skólastjórinn Alexandra Chernyshova spilaði á flygil og tónlistarkennarar tónskólans spiluðu undir. „Þetta var mjög skemmtilegur dagur og allir fóru heim með bros á vör,“ segir Alexandra að lokum.

Þátttakendur, vinningshafar og tónskólastjóri.
Ljósmynd: Aðsend.

Tónlist, gleði og sjálfstraust – eru einkunnarorð Tónskóla Mýrdalshrepps. Atriði vinningshafa er hægt að hlusta á á rás tónskólans á YouTube:https://www.youtube.com/watch?v=gTZr75ehGfk

Nýjar fréttir