Samband sunnlenskra kvenna skora á heilbrigðisráðherra Ölmu D. Möller og forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Díönu Óskarsdóttur.
Samband sunnlenskra kvenna eru regnhlífarsamtök yfir öll kvenfélög í Árnessýslu og Rangárvallasýslu og í sameiningu hafa þau alla tíð stutt dyggilega við heilbrigðisstofnanir á sínu svæði með rausnarlegum gjöfum.
Stjórn Sambands sunnlenskra kvenna sendir frá sér svohljóðandi ályktun sem samþykkt var á stjórnarfundi í Selinu á Selfossi, þriðjudaginn 4. febrúar 2025:
„Stjórn Sambands sunnlenskra kvenna lýsir yfir miklum áhyggjum af ótryggu aðgengi að læknisþjónustu í Rangárvallasýslu. Í sýslunni búa um 4.200 manns, þar eru að auki mörg sumarhús sem gjarnan er dvalið í meira og minna og um svæðið fer mikill fjöldi ferðamanna allt árið um kring. Það veldur óöryggi að ekki sé tryggt að ætíð sé læknir til staðar í svo fjölmennu héraði og er í raun óboðlegt. Sú staða sem upp kom til dæmis um jólahátíðina að enginn læknir var á vakt er algjörlega óásættanleg. Svona óöryggi skapar einnig aukið álag fyrir aðra heilbrigðisstarfsmenn sem starfa á heilsugæslunni og ekki hægt að bjóða þeim upp á það til lengri tíma. Því er brýnt að brugðist verði við sem allra fyrst og ráðnir inn læknar til að sinna þjónustunni.
Stjórn Sambands sunnlenskra kvenna skorar hér með á stjórnvöld og yfirmenn heilbrigðisþjónustu í héraðinu að tryggja nú þegar fyrirsjáanleika og örugga læknisþjónustu til framtíðar.“