4.5 C
Selfoss

Guðrún boðar til fundar á laugardaginn

Vinsælast

Mörg félög og einstaklingar hafa á undanförnum vikum skorað á Guðrúnu Hafsteinsdóttur að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi flokksins. Guðrún hefur nú sett inn tilkynningu á samfélagsmiðlum sínum þar sem hún boðar til fundar 8. febrúar næstkomandi í Salnum í Kópavogi.

„Nú styttist óðum í að sjálfstæðismenn komi saman á landsfundi til að skerpa á stefnu flokksins og velja sér nýja forystu. Þar munum við ræða um framtíðina, frelsi einstaklingsins og hvernig við tryggjum sterkt og frjálst samfélag til hagsbóta fyrir alla landsmenn,“ segir Guðrún í tilkynningunni.

„Fyrir fjórum árum, eftir áratuga starf í atvinnulífinu, fann ég köllun til að bjóða fram krafta mína í þeirri viðleitni að móta íslenskt samfélag. Sú vegferð hefur verið krefjandi, lærdómsrík og gefandi. Ég hef notið hverrar stundar og hef lagt mig fram um að standa vörð um þau grunngildi sem við sjálfstæðismenn trúum á – frelsi, jafnrétti og rétt einstaklinga til að nýta krafta sína til fulls,“ segir hún einnig.

„Á þessum tímamótum í Sjálfstæðisflokknum tel ég rétt að taka samtal við flokksfélaga mína og boða ég til fundar í Salnum í Kópavogi á laugardaginn kemur, 8 febrúar, klukkan 14:00.“

Nýjar fréttir