0.6 C
Selfoss

Krafa um varanlegt varaafl í Vík og tafarlausa stefnumótun til framtíðar

Vinsælast

Þegar þetta er ritað þá hefur verið rafmagnslaust í 12 klukkustundir í Mýrdalshreppi. Taldar eru líkur á að bilun hafi orðið vegna mikilla vatnavaxta í Skógá.

Þetta er í annað skiptið sem íbúar, fyrirtæki og ferðamenn hafa þurft að þola langvarandi rafmagnsleysi á svæðinu á stuttum tíma. Í byrjun september varð samskonar bilun við Jökulsá til þess að rafmagn fór af svæðinu í langan tíma.

Þrátt fyrir fögur fyrirheit RARIK í langan tíma um að verið sé að koma upp varaafli í Vík sem geti tekið við þegar svona atburðir gerast þá hefur það engu skilað. Viðbragð RARIK og Landsnets tekur langan tíma og á meðan þarf að skerða skólastarf, fyrirtæki verða fyrir umfangsmiklu fjárhagstjóni og allir þeir ferðamenn sem eru á svæðinu geta ekki sótt sér þá þjónustu sem þeir þurfa.

Eðlilega þá er ekki hægt að kenna opinberum stofnunum um náttúruhamfarir eða slæm veður. Það er hins vegar fullkomlega eðlileg krafa okkar sem reiðum okkur á þjónustu þeirra að þeir taki mið af aðstæðum hér á svæðinu og geri sitt besta til þess að tryggja eins vel og hægt er að bregðast megi við þegar slíkir atburðir verða.

Árum saman hefur sveitarfélagið bent á að ástandið sé óviðunandi og að kerfið anni ekki þeirri uppbyggingu sem hér hefur orðið. Svæðið reiðir sig alfarið á rafmagn til kyndingar húsa þannig að fyrir utan öll þau óþægindi og óöryggi sem fylgir rafmagnsleysi þá verður mjög fljótt kalt í öllum húsum. Þrátt fyrir ítrekuð áköll um að gert sé ráð fyrir varaafli á fjarskiptasenda þá er staðan ennþá sú að þeir detta út og öll fjarskipti liggja því niðri á stóru svæði. Starfsemi hjúkrunarheimilis og heilsugæslu, sem er beinlínis lífsnauðsynlegt að halda úti, hefur að sama skapi þurft búa við rafmagnsleysi og þannig hefur öryggi allra sem reiða sig á hana verið alvarlega ógnað.

Með þessu erindi er krafist að RARIK og Landsnet tryggi varanlegt varaafl fyrir svæðið þar til lokið hefur verið við nauðsynlegar úrbætur á dreifikerfinu. Til viðbótar þá er þess krafist að nú þegar fari af stað stefnumótun um úrbætur á dreifikerfinu fyrir svæðið til þess að tryggja að hægt sé að halda úti eðlilegri starfsemi.

Með aðgerðarleysi sýna RARIK og Landsnet vítavert skeytingarleysi gagnvart öryggi samfélagsins og eðlilegum lífsgæðum á 21. öldinni. Í framhaldinu verður óskað eftir fundi með fulltrúum beggja fyrirtækja og sveitarstjórn Mýrdalshrepps til að ræða stöðuna og framtíðarlausnir.

Virðingarfyllst,

F.h. sveitarstjórnar Mýrdalshrepps,

Einar Freyr Elínarson, sveitarstjóri Mýrdalshrepps.

Nýjar fréttir