Viðgerð á Víkurstreng lauk rétt fyrir klukkan 19:00 í gærkvöld. Aðgerðin gekk framar vonum, verktakafyrirtækið Þjótandi boraði mjó göng undir árfarveginn og lagði þar í rör, og náðu framkvæmdaflokkar RARIK að klára strengilögn og samsetningu á strengnum mun fyrr en áætlað hafði verið. Jafnframt var 11kV dreifistrengur settur í rörin en hann lá einnig plægður ofan í árfarveginum. Dreifistrengurinn verður settur saman seint í kvöld þar sem skipuleggja þarf straumleysi frá Hrútafelli að Eystri Skógum á meðan sú aðgerð fer fram. Viðgerð á streng við Ytri-Sólheima, þar sem spennistöð RARIK lenti í miklum vatnsflaumi, var einnig lokið í gær og gekk hún mjög hratt og vel fyrir sig. Sendir Neyðarlínunnar er nú kominn í samband við dreifikerfið að nýju og ekki þarf að keyra hann á varaafli.
Eftir prófanir á Víkurstreng var ákveðið að hleypa straumi aftur á hann kl. 19:15. Um klukkustund síðar var álag flutt yfir á strenginn og varaaflið keyrt niður. Heimili og fyrirtæki í Vík og Mýrdal eru nú tengd rafmagni frá Víkurstreng að nýju eftir að hafa verið með rafmagn frá varaaflsvélum frá því á mánudag og kerfið komið í eðlilegan rekstur.
Nokkur líkindi eru með biluninni nú í Skógá og bilunum sem urðu á Víkurstreng í byrjun september, þá í Jökulsá á Sólheimasandi. Þar hefur farið fram efnistaka í ánum neðan við strenglögnina og er það talin möguleg ástæða þess að mikil hreyfing kemst á árfarveginn í vatnsveðri og leysingum líkt og var á sunnudag og mánudag.
Varanlegt varafl á Vík
Allt kapp verður nú lagt á að klára uppsetningu á varanlegu varaafli í Vík en ljóst er að verkefnið mun taka einhverjar vikur til viðbótar. Samtals eiga varaaflsvélar RARIK í Vík að geta framleitt 2,7 MW og ef með er talin tenging um 19kV streng frá Klaustri er þar tiltækt varaafl upp á 3,7 MW. Með þessu ætti varaafl á Vík að geta annað meðalaflþörf svæðisins yfir vetrartímann en hún var 3,4 MW veturinn 2023-2024. RARIK mun á næstu dögum skoða hvað mun áfram standa af færanlegu varaafli í Vík meðan verið er að klára uppsetninguna.
Þess má geta að Vík er einn af fáum stöðum í dreifikerfi RARIK þar sem verið er að bæta í varaafl frekar en draga úr því. Eins og fram hefur komið skortir hringtengingu á svæðinu og jafnframt vantar þar aukna orku. RARIK tekur áskorun sveitarstjórnar Mýrdalshrepps hvað þetta varðar alvarlega og er tilbúið að taka þátt í samvinnu og samtali við sveitarstjórn, Landsnet og stjórnvöld um úrbætur í þessum efnum. Aflþörf svæðisins hefur aukist verulega undanfarin ár og núverandi aflgeta á svæðinu mun ekki geta annað orkuskiptum á þessu svæði til frambúðar.
RARIK vill minna fyrirtæki og stofnanir sem telja sig ekki geta verið án rafmagns í einhvern tíma á að engin dreifiveita getur tryggt 100% örugga afhendingu öllum stundum. Fyrirtæki og stofnanir sem ekki mega við rafmagnsleysi, jafnvel í stutta stund, s.s. hjúkrunarheimili og fjarskiptafyrirtæki, verða að koma sér upp eigin varaafli til að tryggja sig fyrir áhrifum af rafmagnsleysi. RARIK mun hér eftir sem hingað til gera allt sem í sínu valdi stendur til að tryggja afhendingaröryggi á sínu dreifisvæði og bregðast hratt og vel við þegar eitthvað kemur upp á í kerfinu.