5.6 C
Selfoss

Guðjón Reykdal tilnefndur sem Framúrskarandi ungur Íslendingur

Vinsælast

Selfyssingurinn Guðjón Reykdal Óskarsson er einn af tíu einstaklingum sem tilnefndir eru sem Framúrskarandi ungur Íslendingur 2024. Hann er er tilnefndur fyrir störf og uppgötvanir á sviði læknisfræðinnar.

Guðjón er doktor í mannerfðafræði og hefur meðal annars rannsakað sinn eigin sjúkdóm, Duchenne vöðvarýrnun. Hann hefur tekið þátt í birtingu ýmissa fræðigreina í mannerfðafræði. Einnig hélt hann úti hlaðvarpsþættinum Calling Munro þar sem hann og vinir hans spjölluðu á léttu nótunum um dægurmál, heimspeki og vísindi.

Verðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar  eru fyrst og fremst hvatningarverðlaun til ungs fólks sem eru að takast á við krefjandi og athyglisverð verkefni á sínu sviði og hafa verðlaunin verið haldin óslitið  síðan árið 2002.

Dómnefndin í ár var skipuð af Elizu Reid rithöfundi og fyrrum forsetafrú.  Freyju Steingrímsdóttur framkvæmdastjóra Blaðamannafélags Íslands,  Anítu Sóleyju Scheving Þórðardóttur, framúrskarandi ungur Íslendingur 2023 og nemi . Kjartan Hansson senator í JCI og hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands og Alma Dögg Sigurvinsdottir Landsforseti JCI Íslands 2024.

Miðvikudaginn 4. desember fer formleg verðlaunaafhending fram, þar sem Halla Tómasdóttir,  forseti Íslands mun afhenda Topp tíu hópnum viðurkenningu og verður vinningshafi úr hópnum kynntur sem hlýtur titilinn Framúrskarandi ungur Íslendingur ársins 2024.

Nýjar fréttir