5.6 C
Selfoss

Sinfóníuhljómsveit Suðurlands og kór Menntaskólans að Laugarvatni sameina krafta sína

Vinsælast

Sinfóníuhljómsveit Suðurlands heldur jólatónleika sína 2024 í Skálholtskirkju þetta árið.

Að þessu sinni er það Kór Menntaskólans að Laugarvatni sem gengur til liðs við hljómsveitina í flutningi á fjölbreyttri dagskrá jólatónlistar. Hljómsveitina skipa 50 hljóðfæraleikarar en í kórnum syngja um 120 nemendur Menntaskólans. Auk þeirra koma fram einsöngvararnir Dísella Lárusdóttir sópran og Eyjólfur Eyjólfsson tenór.

Þetta er þriðja árið í röð sem Sinfóníuhljómsveit Suðurlands efnir til jólatónleika en áður hafa verið haldnir slíkir tónleikar í Selfosskirkju í samstarfi við alla kóra Selfosskirkju 2022 og í Þykkvabæ 2023 þegar allir kirkjukórar Rangárvallasýslu sameinuðust í söng sínum með hljómsveitinni.

Á efnisskrá tónleikanna er íslensk og erlend jólatónlist af fjölbreyttum toga: jólasveinalög, dægurlög, klassískar einsöngperlur og hátíðleg hljómsveitartónlist svo nokkuð sé nefnt. Talsverður hluti efnisskrárinnar er sérstaklega útsettur fyrir tónleikana og má þar m.a. nefna úkraínska lagið Klukknanna köll sem var útsett af þessu tilefni fyrir hljómsveitina og Kór Menntaskólans.

Stjórnandi tónleikanna er Guðmundur Óli Gunnarsson og stjórnandi Kórs Menntaskólans að Laugarvatni er Eyrún Jónasdóttir.

Tónleikarnir verða eins og fyrr segir í Skálholtskirkju föstudaginn 29. nóv. kl. 20 og laugardaginn 30. nóv. kl. 16 og kl. 20.

Nýjar fréttir