5.6 C
Selfoss

Guðrún Árný með jólatónleika á Suðurlandi

Vinsælast

Guðrún Árný þeysist núna um landið að æfa með kirkjukórunum á þeim stöðum sem jólatónleikarnir hennar fara fram núna í desember. Hún stendur fyrir tónleikum í Víkurkirkju 4. des, Þykkvabæjarkirkju 3. desember og svo er hún í Hafnarkirkju Höfn í Hornafirði 5. desember næstkomandi. Tónleikaferðin fer um allt landið en á dögunum gaf hún út jólaplötuna Notaleg Jólastund.

„Nú er langþráður draumur loks að rætast. Fyrir jólatónleikana 2023 langaði mig að fá lítinn kór og strengjakvartett. Komið var að fyrstu æfingu, allt mjög vanir og færir listamenn. Ég var með ákveðnar vonir og væntingar en hefði aldrei órað fyrir því að útkoman yrði þessi,” segir Guðrún Árný um plötuna. „Ég hlakka afskaplega mikið til að koma og syngja fyrir ykkur.”

Guðrún Árný sendi frá sér plötuna Notaleg Jólastund í byrjun nóvember á stafrænu formi. Núna er vínylplatan komin til landsins.

Guðrún Árný hefur fangað hug og hjörtu landsmanna allt frá því að hún sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna árið 1999. Strax í framhaldinu var hún farin að vinna við tónlist á Hótel Íslandi, söng í undankeppni Eurovision, Landslaginu og var ein af Frostrósunum. Síðustu ár hefur Guðrún svo sýnt á sér nýja hlið þar sem hún stýrir „singalong“ eða samsöngspartýum og breytir þar engu hvort um er að ræða starfsmannapartí í miðri viku eða Herjólfsdal um verslunarmannahelgi.

Guðrún Árný útsetur tónlistina, stjórnar upptökum, syngur, spilar á píanó og framleiðir plötuna.

Guðrún Árný var í Vík í Mýrdal í vikunni á æfingu með kirkjukórnum.
Ljósmynd: Aðsend.

Margra ára undirbúningur

Guðrún Árný á að baki sólóplötu 2007, hefur sungið inn á fjölda annarra hljóðrita, en þessi plata er ástríðuverkefni. „Undanfarin ár hef ég tekið upp jólatónleikana mína í Víðistaðakirkju en ár eftir ár hef ég viljað gera örlítið betur, bæta við og laga og þannig má segja að þessi plata hafi verið nokkur ár í undirbúningi og vinnslu. Það var svo í janúar og febrúar í ár þegar ég fór að hlusta á upptökurnar frá því um jólin í fyrra að ég hugsaði, já, þetta er komið,” segir Guðrún Árný. Í framhaldi setti hún upptökurnar í hljóðblöndun og aðra eftirvinnslu og afraksturinn lítur dagsins ljós 1. nóvember á streymisveitum og svo verður vínylplata fáanleg frá og með 15. nóvember.

Sérvalin lög og sálmar

Á plötunni eru þrettán jólalög og sálmar sem Guðrún Árný valdi sérstaklega og hún nálgast verkefnið af mikilli virðingu við tónlistina. „Þessi lög þýða öll eitthvað fyrir mig. Þetta eru lög sem ég og mjög mörg erum alin upp við. Lög frá Ellý Vilhjálms eru mér sérstaklega hugleikin, svo er þarna fallegt lag sem bróðir minn samdi um jólahefðir fjölskyldunnar okkar þegar við vorum að alast upp, lag sem ég samdi þegar við vorum að alast upp og lag sem ég samdi sjálf um þennan dásamlega tíma sem er desember,” segir Guðrún Árný. Á plötunni tekst Guðrúnu og samstarfsfólki hennar að fanga lifandi flutning á einstakan hátt án þess að upptökurnar líði fyrir það á neinn hátt að vera af lifandi flutningi. Í þeim er dýpt og hreyfing sem ekki er hægt að fanga í hljóðversupptökur. Salurinn og flytjendurnir njóta sín til fulls með áreynslulausum og fallegum hætti.

Þakklát fyrir einstakan samhljóm

„Ég er svo hugfangin og meir yfir því hversu einstakur samhljómur fylgdi þessu fallega listafólki,” segir Guðrún Árný um samstarfsfólkið sitt á plötunni en hún fékk til liðs við sig sex radda kór fyrir verkefnið. Hann skipa söngkonurnar Sigríður Soffía Hafliðadóttir, Særún Rúnudóttir, Sara Gríms og söngvararnir Hafsteinn Þórólfsson, Örn Ýmir Arason og Gísli Magna sem einnig skrifaði og útsetti raddirnar fyrir kórinn. Strengjakvartettinn sem spilar á plötunni skipa þær Chrissie Telma Guðmundsdóttir og Hekla Finnsdóttir á fiðlur, Þórdís Gerður Jónsdóttir á selló og Kristín Þóra Haraldsdóttir á víólu en Kristín sá um að skrifa og útsetja fyrir strengi.

Nýjar fréttir