5.6 C
Selfoss

Ef þú vilt breytingar – kjóstu þá flokk sem tryggir breytingar 

Vinsælast

Samfylkingin er tilbúin til að leiða fram þær breytingar sem þjóðin kallaði eftir á hundruðum funda síðastliðin tvö ár og birtast nú í plani Samfylkingarinnar. Íbúar landsins eru búnir að fá alveg nóg af háum vöxtum, heilbrigðiskerfi sem virkar ekki, ónýtum húsnæðismarkaði og vilja sjá átak í samgöngumálum. Þetta birtist okkur vel í þeim fjölmörgu samtölum sem við höfum átt við íbúa í Suðurkjördæmi síðustu vikurnar. Nú er sögulegt tækifæri til breytinga og Samfylkingin er tilbúin til verka með skýrt plan og trausta forystu leidda áfram af Kristrúnu Frostadóttur sem þjóðin treystir best til þess að leiða næstu ríkisstjórn. Við erum líka tilbúin og ætlum okkur að vera öflugir talsmenn fyrir íbúa í Suðurkjördæmi.

Aukum öryggi fólks og lögum heilbrigðiskerfið 

Það að eiga ekki fastan heimilislækni veldur fólki miklu óöryggi, þetta heyrum við aftur og aftur í samtölum okkar við fólk. Þau sem ekki eiga fastan heimilislækni eru líklegri til að þróa með sér stærri vanda sem skapar aukinn kostnað í heilbrigðiskerfinu og hefur neikvæð áhrif á heilsu fólks. Þessu ætlar Samfylkingin að breyta og sjá til þess að allir íbúar landsins fái fastan heimilislækni á næstu tíu árum. Forgangshópur verður 60 ára og eldri og þau sem eru með langvinn veikindi. Samfylkingin ætlar að taka heildstætt á vanda heilbrigðiskerfisins í stað þess að einblína á einstakan biðlista.

Þjóðarátak í umönnun eldra fólks

Fólkið okkar sem byggði upp landið á skilið að fá góða umönnun og búa við örugg kjör. Samfylkingin ætlar í þjóðarátak í umönnun eldra fólks með því að byggja hratt upp þau hjúkrunarrými sem vantar og efla samþætta heimaþjónustu. Eldra fólk á ekki að lifa við fátækt og Samfylkingin ætlar að stöðva alfarið kjaragliðnun milli launa og lífeyris með því að binda greiðslur við launavísitölu, hækka frítekjumark ellilífeyris úr 25 í 60 þúsund krónur og koma á frítekjumarki vaxtatekna þannig að vaxtatekjur upp að 300 þús kr. skerði ekki greiðslur almannatrygginga.

Lækkum kostnað heimila og fyrirtækja

Við ætlum að negla niður vextina með því að hætta að reka ríkið á yfirdrætti. Það verður að standa betur með ungu fólki og fjölskyldum og laga húsnæðismarkaðinn þannig að hann virki fyrir venjulegt fólk. Það þarf að fara í bráðaaðgerðir á sama tíma og unnið er að langtímabreytingum og Samfylkingin veit hvernig á að gera það og er tilbúin til verka. Þá hefur Samfylkingin þegar lagt fram frumvarp um umtalsverðar og nauðsynlegar breytingar á fæðingarorlofskerfinu. Við ætlum líka að sjá til þess að lífeyrir Tryggingastofnunar ríkisins hækki í takt við launaþróun með því að binda hann launavísitölu.

Öflugt atvinnulíf og tvöföldun á fjárfestingu í samgöngum

Samfylkingin ætlar að tvöfalda fjárfestingar í samgöngukerfinu með tekjum frá auðlindum og aukinni verðmætasköpun. Allir sem reka fyrirtæki vita að það þarf að fjárfesta til að skapa verðmæti, það sama gildir um Ísland. Næsta ríkisstjórn þarf að byrja aftur að fjárfesta og byggja upp sterka innviði til að atvinnulífið geti blómstrað um allt land. Kristrún Frostadóttir fundaði með 250 fyrirtækjum og þetta eru skýr skilaboð sem við tökum alvarlega. Öryggi á vegum úti er lykilatriði, bæði fyrir íbúa landsins og ferðafólk sem sækir landið heim.

Eini flokkurinn sem tryggir breytingar 

Með því að kjósa Samfylkinguna getur þú verið viss um að þú sjáir þessar breytingar. Valið er skýrt:

Viltu lækka skatta eða byggja upp heilbrigðiskerfi og aðra innviði?

Viltu sama fólkið við völd og hefur verið þar í fjölmörg ár eða viltu nýjan öflugan skipstjóra fyrir þjóðarskútuna?

Viltu breytingar eða meira af því sama?

Samfylkingin er eini flokkurinn sem leggur áherslur á að byggja upp sterka innviði og er með trúverðuga leið til að standa við gefin loforð. Samfylkingin er eini flokkurinn með nýjan öflugan leiðtoga sem er tilbúinn til að leiða fram nauðsynlegar breytingar.

Þetta er sögulegt tækifæri til breytinga – kjósum sterka Samfylkingu fyrir fólkið í landinu.

 

Víðir Reynisson 1. sæti

Ása Berglind Hjálmarsdóttir 2. sæti

Sverrir Bergmann 3. sæti

Arna Ír Gunnarsdóttir 4. sæti

Nýjar fréttir