5.6 C
Selfoss

Hrunamannahreppur veitir 50% afslátt af gatnagerðargjöldum atvinnulóða

Vinsælast

Sveitarstjórn Hrunamannahrepps hefur samþykkt að veittur verði 50% afsláttur af gatnagerðargjöldum atvinnulóða við götuna Iðjuslóð á Flúðum.

Munu gatnagerðargjöld við þessa ákvörðun verða á bilinu ca. 3-6 m.kr. pr. lóð en gjaldið fer eftir heimiluðu byggingarmagni á hverri lóð fyrir sig.

Gildir afslátturinn af öllum lóðum við götuna sem úthlutað er til 1. september 2025.

Í greinargerð með tillögunni kemur fram að farið hafi verið í gatnagerð við Iðjuslóð fyrir allmörgum árum en fyrirhugað er að ráðast í yfirborðsfrágang götunnar á næsta ári. Við Iðjuslóð hafa þegar risið tvö hús. Nýverið var þremur lóðum við götuna úthlutað vegna byggingar björgunarmiðstöðvar og einni annarri lóð var nýlega úthlutað. Enn eru því óúthlutaðar sjö lóðir við Iðjuslóð. Eru lóðirnar allar á bilinu 1.586m2–2.400m2 að stærð en nýtingarhlutfall á lóðunum skal vera á bilinu 0,4-0,6. Með því að veita ríflegan afslátt af gatnagerðargjöldum er verið að veita húsbyggjendum og fyrirtækjaeigendum umtalsvert betri kjör á byggingarlóðum en áður hefur tíðkast í þeirri von að slíkur afsláttur glæði áhuga athafnafólks á Flúðum sem vænlegum kosti fyrir uppbyggingu fyrirtækja og atvinnulífs.

Nýjar fréttir