5.6 C
Selfoss

Telja að kennarar beiti verkfallsrétti á óréttlátan máta

Vinsælast

Hersir, félag ungra sjálfstæðismanna í Árnessýslu, hefur áhyggjur af yfirstandandi verkfalli kennara við FSu. Verkfall kennara við Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSu) hefur staðið yfir í þrjár vikur og virðist ekki sjást í land í bráð. Hersir virðir verkfallsrétt kennara en telur að honum sé beitt á óréttlátan máta í þessu tilfelli. Hingað til hafa nemendur FSu verið einu framhaldsskólanemar á landinu sem hafa verið undir höggi verkfallsaðgerða kennara þangað til nú þegar að kennarar við Menntaskólann í Reykjavík hófu verkfall. Okkur þykja aðferðir Kennarasambands Íslands (KÍ), að fara í verkfallsaðgerðir gagnvart einstaka skólum, vera óréttlátar enda hefur verkfallið gífurleg áhrif á nemendur og námsferil þeirra. Verkfallsaðgerðirnar virðast ekki hafa verið til þess fallnar að ýta við undirritun kjarasamninga kennara við ríkið og sveitarfélög en lítið hefur farið fyrir aðgerðunum í opinberri umræðu. Að frumkvæði Hersis ákvað hópur nemenda að mæta í skólann í dag til að ræða óréttlátar aðgerðir KÍ gagnvart nemendum FSu í dag. Ábyrgð beggja aðila er rík og hvetjum við þá til þess að ná saman sem allra fyrst þannig að nemendur geti snúið aftur í skólann.

Stjórn Hersis,

félags ungra sjálfstæðismanna í Árnessýslu.

Nýjar fréttir