5.6 C
Selfoss

Er ást nóg fyrir ástarsamband?

Ást er yndisleg, ást er að þekkja ástartungumál hvors annars, ást er virðing, aðdáun, skilningur og skot. Ástin leiðir af sér ástarsambönd og jafnvel hjónaband. En hvað svo? Dugar ástin ein til að viðhalda heilbrigðu og hamingjuríku sambandi? Að vera í hjónabandi eða ástarsambandi getur verið yndisleg viðbót við lífið. Það er þó ekki sjálfgefið að það sé hamingjuríkt og gefi okkur orku. Hvernig höldum við í hamingjuna í ástarsambandinu?

Ástin er skemmtileg og gefur okkur mikið en hún ein og sér dugar ekki til þess að halda parsambandi gangandi. Til þess þurfum við vinnulag frá báðum aðilum, gagnkvæma virðingu og tilfinningalega skuldbindingu. Þá eru ýmsir þættir sem hafa áhrif á gæði hjónabands, svo sem tilfinningagreind okkar og samskiptafærni, utanaðkomandi álagsþættir og hvernig okkur gengur að mæta áskorunum lífsins saman. Oft er mikill hraði í lífinu og fjölbreyttar kröfur gerðar til einstaklinga. Í þeirri hringiðu vill parsambandið oft lenda aftarlega í forgangsröðuninni. Sé það aftarlega í röðinni um langt skeið getur farið að hrikta í stoðum þess. Þó er óþarfi að örvænta því margt er hægt að gera til þess að kynda eld í gömlum glæðum.

Opin og skýr samskipti eru lykilatriði

Flest teljum við okkur vera náttúrulega góð í samskiptum. Rannsóknir hafa þó sýnt að svo er ekki, flest þurfa að leggja sig fram við að vanda samskipti svo gæði þeirra verði mikil og kostar það meðvitund og æfingu. Þessi skortur á samskiptafærni skapar ekki einungis vanda á vinnustöðum heldur einnig í fjölskyldum og parsamböndum. Það er því lykilatriði í öllum samböndum að iðka opin og skýr samskipti og vera meðvituð um þau. Með því er átt við að tjá tilfinningar, þarfir okkar, vonir, væntingar og áhyggjur en á sama tíma að bera virðingu fyrir viðhorfi maka okkar. Í þessu felst að sýna virka hlustun en það tryggir að báðir aðilar upplifi að þeirra sjónarmið séu heyrð og virt. Í umhverfi þar sem góð samskipti viðgangast eru minni líkur á misskilningi og gremju.

Við erum mis meðvituð um samskiptamáta okkar og áhrif hans – það er verulega áhugavert að staldra við og velta fyrir sér í hreinskilni hvernig samskipti maður iðkar í ástarsambandinu og hver áhrif þeirra eru. Rannsóknir hafa sýnt okkur fjölskyldufræðingum að gæði samskipta eru í takt við gæði sambandins og leggjum við því ríka áherslu á að styðja pör við að temja sér jákvæð og árangursrík samskipti.

Katrín Þrastardóttir,

Fjölskyldufræðingur hjá Auðnast Klíník á Selfossi.

Nýjar fréttir