5.6 C
Selfoss

Það eiga allir séns

Vinsælast

Margir halda að þeir sem ekki hafa lokið grunn- eða framhaldsskóla eigi engan séns á að mennta sig í framtíðinni. Það er mikill misskilningur. Það eiga allir möguleika og það eru til margar leiðir. Ein leiðin er í gegnum símenntunarmiðstöðvar. Í árslok 2002 var Fræðslumiðstöð atvinnulífsins stofnuð og hefur tilvera hennar skotið föstum rótum undir starf símenntunarmiðstöðva, með því m.a. að semja og fjármagna námsskrár sem eru formlega vottaðar og veita fólki námseiningar og einnig starfsréttindi á nokkrum sviðum.

Fræðslunetið símenntun á Suðurlandi var stofnað árið 1999. Það hefur undanfarin 25 ár gefið fjölmörgum Sunnlendingum séns á að láta drauma sína rætast. Hvernig má það vera? Jú, með margvíslegu námsframboði, raunfærnimati og ráðgjöf. Margir hafa komið hikandi í viðtal við náms- og starfsráðgjafa og dregið eigin getu í efa, m.a. vegna slæmra minninga um skólagöngu sína. Eftir faglega ráðgjöf og hvatningu hefur viðkomandi skráð sig í nám og komið sjálfum sér á óvart. Um leið og fólk hefur sett sér markmið í námi er oftast hægt að finna leiðir til að ná þeim. Sumir fara í nám hjá Fræðslunetinu og halda síðan áfram í námi annars staðar. Aðrir ljúka sínu námi hjá Fræðslunetinu, fá sín starfsréttindi og öðlast í kjölfarið meiri starfsánægju og hærri laun.

Fræðslunetið býður ekki aðeins upp á formlegt nám. Það sér um nám fyrir fullorðið fatlað fólk, annast námskeið fyrir fólk í endurhæfingu og sér um íslenskukennslu fyrir útlendinga. Einnig þjónustar Fræðslunetið fyrirtæki á Suðurlandi með ráðgjöf og námskeiðshaldi.

Á hverju ári koma um 1.500 manns í nám af einhverju tagi hjá Fræðslunetinu og eru íbúar af erlendum uppruna stór hluti þessa hóps. Kennarar og leiðbeinendur sem koma nú að kennslunni á afmælisárinu eru yfir 60 en hafa verið allt að 100 á ári.

Fræðslunetið fagnaði tímamótunum með því að bjóða upp á ókeypis fræðsluerindi með Ásdísi Hjálmsdóttur, þreföldum Ólympíufara og leiðbeinanda í hugrænni frammistöðu. Hún fjallaði um ferilinn sinn, hvernig við getum sett okkur markmið og hvernig er best að ná þeim. Erindið náði svo sannarlega til alls þess breiða hóps sem kom og heiðraði Fræðslunetið með nærveru sinni og höfðaði skemmtilega til starfs Fræðslunetsins í gegnum tíðina sem er einmitt að hjálpa fólki að ná markmiðum sínum.

Ljósmynd: Aðsend.

Að erindi loknu var boðið upp á afmæliskaffi og nutu gamlir félagar og námsmenn þess að hittast og spjalla saman. Fræðslunetinu voru einnig færðir fallegir blómvendir í tilefni tímamótanna.

Ljósmynd: Aðsend.

Sunnlendingar geta verið stoltir af framlagi Fræðslunetsins til mannauðsmála og menntunar í 25 ár.

Fræðslunetið- símenntun á Suðurlandi.

Nýjar fréttir