3.4 C
Selfoss

Falleg gjöf

Vinsælast

Menningar- og upplýsingadeild Árborgar vill gjarnan skipa sér á bekk með þeim sem leggja lið nýjum íbúum og hámarka þannig, annars vegar, gróða okkar af nýjum straumum og hinsvegar, vellíðan þeirra sem hingað velja að koma og samsömun þeirra að þessu samfélagi.

Natalia Drumeva er komin til okkar frá Búlgariu og er nú að búa sér heimili hér. En hún er ekki bara komin hingað með menntun sína og þekkingu heldur færði hún Bókasafni Árborgar þessa gullfallegu bók frá sínu heimalandi að gjöf.

Eintakið sem hún færði okkur er eitt af aðeins 200 lúxus-eintökum af „A fairy-tale about Bulgaria“ fjallar um stórmerkilega sögu þessa lands frá tíma fyrstu ljósmynda og fram á miðja síðustu öld. Bókin er svo verðmætur og mikill gripur að hana þurfti að tilkynna sérstkalega á flugvöllum til að hægt væri að ferðast með hana.

Bókasafnið heima hjá henni var vinnustaður móður hennar og það minnir okkur á hvað „hjörtunum svipar saman…“ að við leitum og finnum það sem er kunnuglegt í nýjum og ókunnum aðstæðum og hún valdi að gefa hana Bókasafninu okkar.

Við erum mjög þakklát fyrir að fá þennan fallega grip og munum koma því þannig fyrir að allir fái að skoða og njóta á safninu.

Bestu þakkir Natalia og við vonum að samfélagið okkar reynist þér gott og hlýlegt nýtt heimili.

Bókasafn Árborgar

Nýjar fréttir