5 C
Selfoss

Jólaljósaslóð á Úlfljótsvatni

Vinsælast

Annan sunnudag í aðventu bauð Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni upp á Jólaljósaslóð. Þar var boðið upp lítið ævintýraland í upplýstum jólaskóginum þar sem farið var í leiki og grillaðir sykurpúðar. Þá var einnig í boði að sitja við varðeldinn, hlusta á jólatónlist og drekka kakó.

Þátttaka var mjög góð og voru um hundrað manns mætt til þess að vera saman í skóginum þetta milda og jólalega síðdegi. Vonir standa til um að þessi notalega stund verði endurtekin að ári.

Nýjar fréttir