-0.5 C
Selfoss

Þrjú forsetamerki á Selfoss

Vinsælast

Síðastliðinn sunnudag hlutu 10 ungmenni forsetamerki Bandalags íslenskra skáta við formlega athöfn að Bessastöðum og voru þrjú þeirra, Arney Sif Ólafsdóttir, Bjarni Gunnarsson og Karen Hekla Grønli, frá Skátafélaginu Fossbúum á Selfossi.

Í forsetamerkinu sameinast gildi skátahreyfingunnar um eflingu einstaklingsins og þess að gera sitt besta samfélaginu til heilla. Til þess að vinna að forsetamerkinu þurfa skátar að stunda kröftugt skátastarf í þrjú ár þar sem meðal annars reynir á leiðtogaþjálfun, fjallamennsku, sjálfboðaliðastörf í þágu samfélagsins og þjálfun í verklegum þáttum eins og skyndihjálp, skipulagningu ferða og framkvæmd viðburða. Verkefnin hafa mörg hver tengsl við heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna.

Skátarnir 10 eru allir  á aldrinum 18-20 ára og fengu silfurnælu sem forseti Íslands, verndari skátahreyfingarinnar hefur afhent árlega síðan 1965.

Forsetamerkishafarnir ásamt Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands og Hörpu Ósk Valgeirsdóttur skátahöfðingja. Mynd: Rita Osório

Merkið hlutu:

Arney Sif Ólafsdóttir Skátafélaginu Fossbúum Selfossi
Bjarni Gunnarsson Skátafélaginu Fossbúum Selfossi
Guðbjörg Viðja Pétursdóttir Biering Skátafélaginu Heiðabúum Reykjanesbæ
Hersteinn Skúli Gunnarsson Skátafélaginu Kópum Kópavogi
Jökull Freysteinsson Skátafélaginu Landnemum Reykjavík
Karen Hekla Grønli Skátafélaginu Fossbúum Selfossi
Pjetur Már Hjaltason Skátafélaginu Ægisbúum Reykjavík
Sebastian Fjeldal Berg Skátafélaginu Klakki Akureyri
Sigurbjörg Erla Pétursdóttir Biering Skátafélaginu Heiðabúum Reykjanesbæ
Sunna Dís Helgadóttir Skátafélaginu Skjöldungum Reykjavík.

Random Image

Nýjar fréttir