3.4 C
Selfoss

Tómas Ellert leiðir M-lista og Sjálfstæðra í Árborg

Vinsælast

Efstu tíu á framboðslista M-lista og Sjálfstæðra í Svf. Árborg ásamt þeim tveim sem skipa heiðurssæti listans voru kynnt á aðalfundi Árnesingadeildar Miðflokksins nú seinni partinn í dag. Tómas Ellert Tómasson, formaður bæjarráðs og Ari Már Ólafsson munu leiða listann.

Undanfarin fjögur ár hefur Svf. Árborg tekið algerum stakkaskiptum. Hugmyndirnar sem settar voru á blað og áætlanirnar sem gerðar voru í upphafi þessa kjörtímabils og unnið var eftir undir vinnuheitinu „Nýtt upphaf í Árborg“ hafa nú risið og raungerst hver af annarri. Um allt land er eftir því tekið hve vel hefur lukkast. Umframeftirspurn eftir húsnæði og hin fordæmalausa íbúafjölgun í sveitarfélaginu segir sína sögu um hve eftirsóknarvert það er að búa hér.

Umskiptin sem eiga sér nú stað, úr fábreytni í fjölbreytni á öllum sviðum mannlífsins hafa bætt búsetuskilyrðin hér svo um munar. Framboðslisti M-lista og Sjálfstæðra í Svf. Árborg mun halda áfram að vinna að því að sveitarfélagið verði eftirsóknarverður búsetukostur. Nú undir vinnuheitinu „Nýja Árborg“.

Á næstu vikum mun framboðið kynna þær áætlanir og hugmyndir sem tengjast hinni „Nýju Árborg“.

Efstu 10 sæti listans skipa:

  1. Tómas Ellert Tómasson, Byggingarverkfræðingur, formaður bæjarráðs og eigna- og veitunefndar
  2. Ari Már Ólafsson, Húsasmíðameistari, nefndarmaður í skipulags- og byggingarnefnd
  3. Sigurður Ágúst Hreggviðsson, Sölumaður og fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Svf. Árborg
  4. Erling Magnússon, Lögfræðingur og húsasmíðameistari
  5. Dr. Ragnar Anthony Antonsson, Dr. Í heimspeki, kennari
  6. Dýrleif Júlía Guðlaugsdóttir, Líftæknifræðingur og dagforeldri
  7. Sveinbjörn Jóhannsson, Húsasmíðameistari
  8. Björgvin Smári Guðmundsson, Grunnskóla- og skákkennari og fyrrv. formaður Skákfélags Selfoss og nágrennis
  9. Sverrir Ágústsson, Félagsliði á réttargeðdeild LSH
  10. Jón Ragnar Ólafsson, Atvinnubílstjóri og íþróttaáhugamaður

Heiðurssætin skipa

Ásdís Ágústsdóttir, Húsmóðir
Guðmundur Kristinn Jónsson, Heiðursformaður HSK og fyrrverandi bæjarfulltrúi

Random Image

Nýjar fréttir