-0.6 C
Selfoss

Góð stemning á hrútasýningu Sauðfjárræktarfélags Hrunamanna

Vinsælast

Fjölmenni sótti vel heppnaða hrútasýningu sem Sauðfjárræktarfélag Hrunamanna hélt laugardaginn 16. október sl. í Reiðhöllinni á Flúðum. Ekki var aðeins margt um manninn heldur var líka mikið af fallegu fé. Alls komu kindur frá tólf bæjum í sveitinni og gat þar að líta lambhrúta af ýmsum litum og gerðum og lambgimbrar sömuleiðis og margar mjög litskrúðugar. Einnig mátti sjá forystufé. Það kom einmitt í hlut tveggja forystugimbra að útnefna sigurvegara í rollubingóinu en þar var afgirtu hólfi skipt í 36 reiti og viðstaddir biðu í ofvæni eftir því að forystugimbrarnar pissuðu í réttu reitina!

Mynd: Aðsend.

Dómarar og helstu úrslit

Sérlegir dómarar hrútasýningarinnar voru sem fyrr Sigurfinnur Bjarkarsson frá Tóftum og Jökull Helgason á Ósabakka.  Þeir sýndu mikla færni í störfum sínum og útskýrðu dómana vel fyrir viðstöddum. Keppt var í hinum ýmsu flokkum. Í flokki mislitra lambhrúta varð efstur móflekkóttur hrútur (undan Glámssyni) frá Syðra-Langholti, í öðru og þriðja sæti urðu hrútar, báðir undan heimahrútum, frá Magnúsi og Alinu á Kópsvatni. Magnús og Alina áttu einnig efsta hrútinn í hópi veturgamalla hrúta sem er hvítur og kollóttur ættaður frá Broddanesi á Ströndum. Hrútur frá Syðra-Langholti undan Velli, sæðingarstöðvarhrút, varð þar í öðru sæti og þriðji var hrútur frá Þverspyrnu einnig undan Velli. Í fyrsta sæti í flokknum ,,best gerða gimbrin“ varð gimbur frá Hruna undan Muninn sem er sæðingarstöðvarhrútur, í öðru sæti gimbur frá Hrafnkelsstöðum undan heimahrút og í því þriðja gimbur frá Ásatúni sem er undan Sandi frá Sandfellshaga. Yfir fjörutíu hrútar komu til álita í flokki hvítra lambhrúta en þar varð efstur, eftir mikið þukl og spekúleringar hjá dómurum, hrútur frá Hruna sem er undan heimahrúti ættuðum frá Mávahlíð, í öðru sæti var hrútur frá Hrepphólum undan Muninn og í því þriðja hrútur frá Langholtskoti undan Heimakletti sem einnig er sæðingarstöðvarhrútur.

Þukl, skrautlegasta gimbrin og ,,íhaldsmaðurinn“

Þá var gestum hrútasýningarinnar boðið að þukla fjóra lambhrúta og raða þeim upp eftir gerð. Góð þátttaka var í þuklinu og svo fór að ungur efnispiltur ættaður frá Syðra-Langholti, Birkir Aron Ársælsson, og Grímur Guðmundarson í Ásatúni fóru með sigur af hólmi. Einnig kom til kasta allra viðstaddra á sýningunni að kjósa skrautlegustu gimbrina en þar komu margar fallegar til álita. Þegar búið var að telja upp úr kössunum stóð efst móflekkótt gimbur frá Syðra-Langholti. Það kom loks í hlut ,,íhaldsmanna“ síðustu hrútasýningar, systranna Önnu Maríu og Ástbjartar Magnúsardætra, að útnefna arftaka sinn. Þær völdu Unnstein Hermannsson í Langholtskoti ,,íhaldsmann sýningarinnar“ eftir frábær tilþrif hans með kollóttan lambhrút sem lét býsna ófriðlega um tíma. Stjórn Sauðfjárræktarfélagsins þakkar öllum gestum og þátttakendum á hrútasýningunni fyrir ánægjulega og vel heppnaða samveru.

Random Image

Nýjar fréttir