0.3 C
Selfoss

Hamarsmenn enn með fullt hús

Vinsælast

Úrvalsdeildarlið Hamars í blaki karla er enn með fullt hús stiga eftir öruggan sigur á Fylki í Hveragerði á miðvikudaginn.

Fylkismenn áttu á brattann að sækja allan leikinn. Mótspyrnan var mest í fyrstu hrinu en fór svo minnkandi. Fór svo að Hamar vann leikinn 25-18, 25-15 og 25-14, samtals 3-0. Maður leiksins var Wiktor Mielczarek kantmaður Hamars en hann var stigahæstur í leiknum með 12 stig, þar af 8 skoruð með smassi, 3 úr uppgjöf og 1 úr hávörn. Stigahæstur í liði Fylkis var Alexander Stefánsson með 7 stig.

Hamar er eftir leikinn í 2. sæti deildarinnar með 12 stig eftir fjóra leiki en HK er á toppnum, einnig með fullt hús stiga en Hamarsmenn eiga leik til góða.

Random Image

Nýjar fréttir