4.9 C
Selfoss

Austasti kaflinn tekinn í notkun í haust

Vinsælast

Framkvæmdir við 2. áfanga Hringvegar (1) milli Hveragerðis og Selfoss eru á áætlun. Brúarsmíði er í fullum gangi en þrjár brýr, tvö undirgöng og tvö reiðgöng eru hluti verksins. Vinnu við nýlagnir veitufyrirtækja er að ljúka og næsta skref er að byggja upp Ölfusveg svo beina megi umferð um hann meðan Hringvegur er byggður upp, en austasti hluti hans við Selfoss verður tekinn í notkun í haust.

Verkið heitir Hringvegur (1) Biskupstungnabraut – Gljúfurholtsá. Útboðskaflinn liggur um land sveitarfélaganna Árborgar og Ölfuss og skiptist í Hringveg (um 7,2 km), Ölfusveg (um 6,6 km),Þórustaðaveg (um 0,4 km) og Biskupstungnabraut (um 0,7 km). Tvö stærri vegamót eru í framkvæmdinni, hringtorg við Biskupstungnabraut og nýjan Hringveg og svo hliðfærð T-vegamót á Hringvegi við Hvammsveg eystri og Kirkjuferjuveg. Til framkvæmdanna teljast einnig bygging þriggja brúarmannvirkja, tveggja undirganga og tveggja reiðganga auk breytinga á lagnakerfum veitufyrirtækja. Hringvegur verður byggður upp sem 2+2 vegur en gengið verður frá yfirborði hans sem 2+1 vegar.

ÍAV – Íslenskir aðalverktakar áttu lægsta tilboð í verkið, 5.069 m.kr. og var skrifað undir samning í apríl 2020 en framkvæmdir hófust strax að því loknu. Ágúst Jakob Ólafsson verkstjóri ÍAV segir verkið ganga mjög vel. „Fyrsti fasi verkefnisins fór í að setja farg á austasta hluta af Hringveginum sjálfum frá Ingólfsfjalli austur að Selfossi og hliðarveg, svokallaðan Ölfusveg á sama svæði, framhjá Kögunarhóli og austur með Ingólfsfjalli,“ lýsir Ágúst en laus jarðlög eru á svæðinu, sérstaklega mýrarjarðvegur sem er allt að 8 m þykkur. Fergja þarf slík svæði í ákveðinn tíma áður en hægt er að hefja eiginlega vegagerð. „Við settum um 440 þúsund rúmmetra farg á þessi tvö svæði í fyrrasumar og erum byrjaðir að aflétta því í dag og byrjaðir að byggja vegina í sinni endanlegu mynd.“

Af þremur brúm er búið að steypa upp brú á Gljúfurholtsá um Ölfusveg og verið að byggja aðra brú á Gljúfurholtsá á Hringvegi. „Við erum einnig að byggja undirgöng um Kotströnd þar sem Ölfusvegur fer undir Hringveginn og búið er að gera ein reiðgöng undir Hringveginn nær Selfossi.“ Verkið er afar viðamikið enda með stærri verkefnum sem Vegagerðin hefur boðið út. Eitt af flækjustigunum er að samþætta breytingar á lagnakerfum veitufyrirtækja en ÍAV sér um jarðvinnu og nýlagnir fyrir Veitur, Mílu, Gagnaveitu Reykjavíkur, Ölfus, Árborg, Árbæjarhverfi og Rarik. Ágúst segir þessa vinnu hafa gengið vel og henni sé nánast lokið. „Næstu verkefni er að byggja upp Ölfusveg til að færa umferð á hann af Hringvegi svo hægt sé að byggja upp Hringveginn. Síðan á að byggja upp austasta hluta Hringvegarins, næst Selfossi. Það eru hingtorg við Biskupstungnabraut og austasta hluta af Hringvegi,“ lýsir Ágúst en þennan hluta af Hringvegi á að taka í notkun í haust.

Óska eftir meiri tillitsemi ökumanna

Í dag starfa 44 við framkvæmdina, bæði starfsmenn ÍAV og undirverktakar sem eru um 12 talsins. Stórvirkar vinnuvélar spila stóran þátt en að sögn Ágústs eru í verkinu 5 beltagröfur, 3 jarðýtur, 2 valtarar, 3 búkollur, 5 fjögurra öxla bílar og 4 trailerar, byggingakranar og ýmislegt fleira. Starfsmenn vinna í mikilli nálægð við þunga umferð en samkvæmt umferðartölum frá 2018 var umferðin milli Hveragerðis og Selfoss um 12.700 bílar á sólarhring yfir sumartímann. „Framkvæmdirnar hafa ekki haft mikil áhrif á umferðina. Tafir eru litlar og umferðin flæðir nokkuð vel. Við erum hins vegar í smá basli með umferðarhraðann, menn sýna okkur litla tillitsemi,“ segir Ágúst og bendir á að reynt sé að taka hraðann ekki of mikið niður til að halda umferðarflæði. „Það myndi muna miklu ef fólk færi eftir þessum vægu hraðatakmörkunum svo ekki þurfi að taka hraðann meira niður.“

Vinnusvæðamerkingar er mikilvægur hluti af framkvæmdinni. „Það liggur mikil vinna í að viðhalda merkingum, ætli það sé ekki heilt stöðugildi sem fer í það,“ segir Ágúst og bendir á að þar sem hraðinn sé tekinn niður í 50 km/klst. sé það aðeins gert á vinnutíma. Þær merkingar séu teknar niður á kvöldin og um helgar og hækkar þá hraðinn í 70. Að öðru leiti hafa framkvæmdir gengið vel að sögn Ágústs. „Við höfum verið heppnir með covid, höfum ekki fengið neitt smit enda haldið okkur í hálfgerðri bólu. Við erum vel á áætlun, aðeins á undan ef eitthvað er, en verklok eru ekki fyrr en í september 2023 svo ýmislegt getur gerst.“ Segja má að orðatiltækið „fall er fararheill“ eigi ágætlega við um framkvæmdina þar sem eldhússkáli í vinnubúðum ÍAV brann til kaldra kola áður en hann var tekinn í notkun. „Það hafði þó engin áhrif á verkið sjálft og við héldum bara áfram að njóta góðrar þjónustu á Hjarðarbóli þar sem við erum í fæði. Þar erum við ekki á kot settir,“ segir Ágúst og er bjartsýnn á framhaldið. Birt með góðfúslegu leyfi Vegagerðarinnar, en greinin birtist fyrst í Framkvæmdafréttum.

Nýjar fréttir