8.9 C
Selfoss

Litagleði í Listajá Bókasafni Árborgar

Vinsælast

Kolbrún Ásmundsdóttir heldur sýningu í Listagjá Bókasafnsins núna,, Kolbrún er uppalin í Reykjavík og bjó þar alla sína tíð. Hún flutti til Selfoss sumarið 2017.  Kolbrún útskrifast frá Fósturskóla Íslands 1986 og vann hlutastörf á leikskóla. Hún á 3 uppkomin börn og 3 barnabörn. Sem barn ólst hún upp með skapandi föður sínum frá unga aldri,hann skar út dýr úr fiskbrjóski, límdi skeljar á rekavið  útbjó lampa og margt fleira. Listrænir hæfileikar hafa ávallt verið í huga hennar og fór hún fyrir alvöru að mála myndir  fyrir ári síðan. Hún var mikið náttúru barn elskaði fjörur og drullubú.

Kolbrún er einnig mikill fagurkeri hvað varðar heimilið sitt  hún heldur úti Facebook-síðunni kollakiss og þar má sjá myndir eftir hana. Sýningin er opin á sama tíma og bókasafnið og stendur til 29.maí.

 

Nýjar fréttir