6.7 C
Selfoss

Sunnlendingurinn Hlynur Torfi gerir það gott í MMA í Finnlandi

Vinsælast

Bardagakappinn Hlynur Torfi Rúnarsson sigraði sinn annan áhugamannabardaga fyrir skömmu. Bardaginn fór fram á MMA Cup Lahti í Finnlandi.

Hlynur mætti Markus Isosomppi Ahjo (0-0) sem hefur reynslu í boxi en var að berjast sinn fyrsta MMA bardaga. Hlynur kláraði Markus með „rear naked choke“ strax í 1. lotu. Hlynur er 2-0 sem áhugamaður í MMA og hefur klárað báða bardaga sína með hengingu í fyrstu lotu.

Hlynur æfði í 3 ár í Mjölni en flutti fyrr á árinu með kærustunni sinni til Finnlands þar sem hann æfir í Finn Fighters Gym. Í Finnlandi er bardagasenan á fullu gasi og er því auðvelt fyrir Hlyn að finna bardaga.

Hér að neðan er að finna myndbandsviðtal við Hlyn!

Nýjar fréttir