-0.9 C
Selfoss

Norrænt vinabæjarmót í Þorlákshöfn

Vinsælast

Norrænt vinabæjarmót verður haldið í Þorlákshöfn í sumar. Mótið er sameiginlegt verkefni Norræna félagsins og Sveitarfélagsins Ölfuss og verður það haldið dagana 5. til 9. júlí. Er þetta í annað sinn sem sveitarfélagið heldur þetta mót en Ölfus hélt það í fyrsta sinn sumarið 2007. Mótin eru haldin á tveggja ára fresti til skiptis í viðkomandi löndum. Vinabæir Ölfuss eru Vimmerby í Svíþjóð, Rygge í Noregi, Skærbæk í Danmörku og Kauhava í Noregi.

Gestirnir munu mæta síðdegis miðvikudaginn 5. júlí, en mótið er fimmtudaginn, föstudaginn og laugardaginn. Heimferð er sunnudaginn 9. júlí.

Um 50 gestir hafa boðað komu sína frá þessum fjórum vinabæjum. Flestir vilja búa á einkaheimilum, en það er hefð fyrir því að gestir hafi kost á því að gista í heimahúsum. Nokkrir óska eftir því að vera á gistiheimili og verður þeim komið fyrir á gistiheimilum í bænum. Gestgjafar hafa síðan möguleika á að taka þátt í dagskrá mótsins og er þeim einnig boðið í hátíðakvöldverð sem er á laugardagskvöldinu, ásamt því að taka þátt í grillveislu í skrúðgarðinum á föstudagskvöldinu.

Mikil og metnaðarfull dagskrá er í mótun og verður margt skemmtilegt gert með gestunum innanbæjar, auk þess sem farið verður í ferðir út fyrir Ölfusið. Heimsóknir eru áætlaðar í fyrirtæki, verslanir og kaffihús.

Ráðhúsið verður miðstöð vinabæjarmótsins alla dagana. Þar verður tekið á móti gestum fyrsta kvöldið og boðið upp á heita súpu, gögn afhent og gestgjafar taka á móti sínum gestum. Í Ráðhúsinu fara einnig fram fundir, kynningar, hádegisverður og síðan hátíðarkvöldverður.

„Við í undirbúningsnefndinni treystum á og vitum að íbúar í sveitarfélaginu muni sameinast um að taka sem best á móti okkar norrænu gestum. Takið dagana frá, sameinumst um að gera mótið sem fjölbreyttast og skemmtilegt fyrir gesti okkar og okkur sjálf, segir Halldór Sigurðsson á heimasíðu sveitarfélagsins en hann á sæti í undirbúningsnefndinni.

Random Image

Nýjar fréttir