-3.5 C
Selfoss

Skráning í Hengill Ultra hafin

Vinsælast

Skráning í Hengill Ultra, lengsta utan vega hlaup á Íslandi er hafin á www.hengillultra.is. Hlaupið er nú haldið í sjötta sinn og fer það fram laugardaginn 2. september nk. Í keppninni í ár verður í fyrsta sinn boðið upp á 100 kílómetra vegalengd sem gerir hlaupið að lengsta utanvegahlaupi á Íslandi. Einnig er boðið uppá fimm aðrar vegalengdir við allra hæfi. Hengill Ultra er síðasta stóra hlaup sumarsins og má því segja að þetta verði sannkölluð uppskeruhátíð íslenskra hlaupara.

Þátttaka í 50, 83 og 100 km vegalengdunum í Hengill Ultra tryggir keppendum þátttökupunkta í hinum heimsfrægu Mont Blanc hlaupum. Fjöldi hlaupara kemur erlendis frá til að taka þátt í Hengill Ultra því slík punktagjöf býðst ekki hvar sem er í heiminum. Hengill Ultra og Laugavegshlaup ÍBR eru einu hlaupin á Íslandi sem státa af slíku samstarfi við þessa vinsælu keppni í Sviss. http://utmbmontblanc.com/en/

Hengill Ultra hlaupið hefur verið haldið um hásumar síðustu fimm ár en hefur nú verið flutt á fyrsta laugardag í september. Það var gert til þess að færa hlaupið út úr allra hæsta ferðamannaálaginu þannig að erlendir keppendur eigi auðveldara með að tryggja sér flug til landsins og gistingu á svæðinu. Skipuleggjendur hafa verið að senda út kynningarefni um hlaupið á erlenda hlaupamiðla. Erlendir hlauparar, vefmiðlar og hlaupatímarit eru nú þegar byrjuð að sína hlaupinu áhuga.

Markmið skipuleggjenda er að gera Hengill Ultra að skemmtilegasta utanvegahlaupi landsins með metnaðarfulla umgjörð fyrir keppendur og aðstandendur. Á næstu fimm árum ætla aðstandendur mótsins að gera það að þekktri stærð í hlaupasamfélögum í Evrópu, Bandaríkjunum og Kanada.

Upphaf hlaupsins og mótstjórn verður sem fyrr í hjarta Hveragerðis í lystigarði bæjarbúa og verður öllum vegalengdum haupsins startað þaðan. 100 og 83 kílómetra hlaupið verður ræst kl. 04.00 að morgni. 50 km hlaupið verður ræst kl. 9:00. Ræsing í 24 km hlaupið er kl. 13:00 og 10 km og 5 km hlaupin verða ræst kl. 14:00.

Hlaupið er upp Reykjadalinn, upp á Hellisheiði og inn að Hengli og upp hann og er útsýnið þaðan algjörlega einstakt á góðum degi og þessi hlaupaleið einhver sú alfallegasta sem hægt er að finna á Íslandi.  Í 5 og 10 kílómetra hlaupunum verður hlaupið meðfram Hamrinum einu af fegurstu kennileitum Hveragerðis í gegnum skógivaxið svæðið fyrir ofan bæinn.

Heilmikið verður í boði fyrir fjölskyldur hlaupara og þá sem fylgja hlaupurunum í Hveragerði þennan dag. Blásið verður til sannkallaðrar fjölskylduveislu með tónlist og leiktækjum. Sögugöngur, grænmetis- og blómamarkaður eru einnig á meðal þess sem boðið verður uppá og hvetja skipuleggjendur hlaupsins alla til að mæta.

Hægt er að fylgjast með framvindu og undirbúningi mótsins á

Aðstaða og umgjörð
Keppendum verður boðið upp á heita máltíð og hressingu eftir keppni og allir sem hlaupa fá gjafabréf í sund. Keppendur í Ultra Maraþon vegalengdunum (100, 83 og 50km) fá aðgang að sjúkranuddarar að lokinni keppni.  Verðlaunaafhending og grillveisla fyrir keppendur og aðstandendur verður svo kl 17:00. Tímatökubúnaður verður notaður og allir hlauparar nema í 5 og 10 kílómetrunum hlaupa með tímatökuflögur en tímatakan verður undir stjórn fagmanna frá ÞRÍKÓ sem sérhæfa sig í tímatökum á íþróttamótum sem þessum.
 
Allir hlaupa, allir vinna og allir velkomnir
Allir keppendur fá verðlaunapeninga og dregið verður úr glæsilegum brautarvinningum á verðlauna afhendingunni. Þannig að allir fá eitthvað til minningar um þátttökuna í þessu mikla afreks hlaupi.
 
Slagorð hlaupsins er „Allir hlaupa, allir vinna og allir velkomnir“
Öryggi keppenda
Aukin áhersla verður lögð á öryggisgæslu í ár. Björgunarsveitir munu sjá um öryggisgæslu í brautinni en hlaupið er um torfær svæði og á mörgum stöðum eru tæki eins og fjórhjól og háfjallajeppar einu tækin sem komast auðveldlega til að geta  sótt slasaða hlaupara úr brautinni. Læknir verður á vakt við mótstjórn allan daginn og sjúkrabifreið til flutnings slasaðra á sjúkrahús komi til alvarlegra slysa eða heilsubrests á keppnisstað. 
 
Tímasetningar
Hengill Ultra fer fram 2. september nk.
·    100 km – ræsing 04:00
·      83 km – ræsing 04:00 
·      50 km – ræsing 09:00 .
·      24 km – ræsing 11:00 
·      10 km – ræsing 14:00 
·        5 km – ræsing 14:00 
 
Kort af hlaupaleiðum og nánari upplýsingar um mótið verður hægt að finná heimasíðu mótins www.hengillultra.is
           
Skráning
Skráning í Hengill Ultra fer fram á www.hengillultra.is. Gjafapoki með HENGIL ULTRA bol og óvæntum glaðningum frá samstarfsaðilum er innifalinn í skráningu fyrir alla þá sem skrá sig fyrir þriðjudaginn 1. ágúst. Skráning hefst 6. maí og er opin til miðnættis sunnudaginn 27. ágúst. Eftir það verður ekki hægt að skrá sig til leiks í 100, 83, 50 og 24km hlaupin. Hægt verður að skrá sig í 5 og 10 km hlaupin fram til klukkan eitt á mótsdag.
Random Image

Nýjar fréttir