4.5 C
Selfoss

Mikið um dýrðir á lokahófi Körfuknattleiksfélags FSu

Vinsælast

Lokahóf meistaraflokks karla hjá Körfuknattleiksfélagi FSu var haldið sl. laugardag á Hótel Selfossi. Þetta var skemmtileg samkoma, með hefðbundnu sniði, ávarpi formanns, styrktaraðila og einnig komu leikmenn í pontu með góð innlegg. Hófinu lauk með glæsilegum þriggja rétta kvöldverði að hætti hússins.

En auðvitað var þetta fyrst og fremst uppskeruhátíð þar sem þjálfarar veittu viðurkenningar á báðar hendur.

Þessir fengu viðurkenningar fyrir tímabilið 2016-2017:
Besti leikmaður: Ari Gylfason.
Besti varnarmaður: Ari Gylfason.
Besti ungi leikmaður: Helgi Jónsson.
Mestu framfarir: Jón Jökull Þráinsson.
Besti liðsfélaginn: Hlynur Hreinsson.
Vinnuhesturinn: Svavar Ingi Stefánsson.

Að lokinni afhendingu viðurkenninga til leikmanna afhenti formaður félagsins helstu styrktaraðilum þakklætisvott frá félaginu. Ásta Stefánsdóttir bæjarstjóri Árborgar og Tómas Þóroddsson f.h. Kaffi krúsar sýndu félaginu þann heiður að mæta og taka þátt í samkomunni. Stærstu styrktaraðilarnir, auk ofantaldra, eru JÁVERK, Hótel Selfoss, Set ehf. og Héraðsskólinn og eiga þessir aðilar von á sendingu á næstu dögum.

Nýjar fréttir