2476

2 Miðvikudagur 21. nóvember 2018 DAGSKRÁIN - Fréttablað Suðurlands Meira til skiptanna Sími 482 2722 • Austurvegi 52, Selfossi • solning.is Meira til skiptanna Sími 482 2722 • Aus turvegi 52, Selfossi • solning.is Staður fasteignasala býður upp á: - Fagljósmyndun - Persónulega þjónustu - Frítt söluverðmat - Lága söluþóknun Ætlar þú að selja þína fasteign? Hafðu samband í s. 662 4422 eða sendu tölvupóst á sverrir@stadur.is Erum staðsettir að Austurvegi 6, í hjarta miðbæjarins 33 dagar til jóla Í síðustu viku kynnti ÞG verk ehf. nýjar íbúðir sem fyrirtækið hefur verið að byggja við Álalæk á Selfossi. Alls er um 57 íbúðir að ræða í þremur fjölbýlishúsum. Íbúðirnar eru 2-6 herbergja frá 60 til 120 fermetra að stærð. Fyrsta byggingin sem er með 23 íbúðum hefur þegar verið afhent eigend- um. Þar eru einungis þrjár íbúðir óseldar. Íbúðun- um fylgja rafhleslustöðvar sem íbúar geta notað til að hlaða rafmagnsbíla. Íbúðirnar eru á töluvert lægra verði en t.d. á höfuðborgarsvæðinu og því álitlegur kostur fyrir marga. Sindri Már Guðbjörnsson er byggingastjóri hjá ÞG verki og vinnur að verkefninu ásamt Brynj- ari Erni Áskelssyni. Þeir eru í stjórnunarteymi á staðnum. „Strax þegar við byrjuðum á framkvæmdum byrjuðum við að pæla í þessum hleðslustöðvum. Ég hafði mikinn áhuga á að leysa það vandamál. Við erum stór aðili á byggingamarkaði og höfum stundum lent í vandamálum þessu tengt sem við höfum þurft að leysa. Það er mjög mikið álag á þessar lagnaleiðir og þær eru tengdar inn á sér- eignamæla. Það getur slegið út þegar það eru komnir visst margir bílar. Þá er ekki nóg rafmagn fyrir alla í húsinu. Við þurftum því að finna leiðir hvernig væri best að gera þetta. Við byrjuðum á að leggja fullt af ídráttarrörum sem enduðu í einu ídráttarröri. Við komumst í samband við Ísorku og höfum líka unnið með Árvirkjanum hér á Selfossi. Við þróuðum þessa lausn sem við erum með hérna fyrir þessar blokkir. Við erum mjög ánægðir með hana,“ segir Sindri Már. Sindri Már flutti af höfuðborgarsvæðinu til Þorlákshafnar og sinnir starfi sínu þaðan. „Lóðirn- ar eru miklu ódýrari hérna og íbúðir miklu ódýrari Hægt að spara 10-15 milljónir með því að kaupa íbúð á Selfossi heldur en í bænum. Með því að bjóða upp á að þú getir hlaðið bílinn þinn heima þá getur þú keypt rafmagnsbíl og íbúð á hagstæðu verði. Þá geturðu unnið í bænum og sparað þér 10–15 milljónir. Það fer eftir því hvar þú ert að skoða stóra íbúð. Ef við miðum t.d. við Valsreitinn, þar kostar tveggja herbergja íbúð 40 milljónir. Hérna kostar hún 26,7 milljónir. Ný Nissan Leaf kostar rétt rúmar 3 milljónir. Þannig að þar erum við að tala um 30 milljónir. Þú sparar 10 milljónir.“ „Fyrsta fjölbýlishúsið sem við byggðum hér í Álalæk 17 er eiginlega alveg komið í notkun. Þar eru bara þrjár íbúðir af tuttugu og þremur óseldar. Þá er búið að selja tíu íbúðir í Álalæk 15 sem við erum að fara að klára núna í mars. Álalækur 13 er ekki kominn í sölu en við erum þó búnir að selja eina íbúð þar. Hann fer í sölu núna í janúar.“ Það sem gerir íbúðirnar sem ÞG verk eru að byggja á Selfossi sérstakar er rafmagnsþátturinn og einnig baðherbergiseiningarnar. Sindri Már segir að hingað til hafi enginn skilað nýju fjölbýl- ishúsi með hleðslustöðvum eins og ÞG verk er að gera á Selfossi. „Þetta er m.a. gert með þessum hætti vegna þess að það er oft slagur í húsfélögum um hver á að borga hvað. Kostnaðurinn við fleiri hleðslustöðvar er hlutfallslega lítill og við erum að skila meiri gæðum með þessu. Með svona mörg- um hleðslustöðvum er ágreiningur um hleðslu- stöðvar eiginlega sleginn út af borðinu. Það eru þrjár hleðslustöðvar við þessa nýju byggingu og mjög auðveldlega hægt að bæta tveimur við. Tvo bíla má tengja við hverja hleðslustöð. Það eru sex stæði í notkun núna en möguleiki á tíu stæðum fyrir 23 íbúða hús,“ segir Sindri Már. Viðtal: ÖG. Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri í Árborg vígir nýja hleðslustöð við Álalæk 17. Mynd: ÖG. Sindri Már Guðbjörnsson er byggingastjóri hjá ÞG verki. Mynd: ÖG. N okkur fjöldi af fólki var samankominn þegar kveikt var á jólaljósunum í Árborg sl. ¿PPWXGDJ *tVOL +DOOGyU +DOO - dórsson hóf dagskrána með stuttu ávarpi. Þórir Geir Guð- mundsson söng nokkur jóla- lög og Barna- og unglingakór Selfosskirkju söng undir stjórn Eyrúnar Jónasdóttur. Það má VHJMD Dè YHèULè KD¿ HNNL YHULè t neinu jólaskapi með viðstöddum en slagveðursrigning tók á móti gestum. Það gerði þó lítið til því Skátafélagið Fossbúar buðu upp á heitt og ljúffengt kakó. Aðal- atriðið var þó í höndum Svavars Rúnars Ólafssonar, 2 ára íbúa Árborgar, sem kveikti á jólaljós- unum við dúndrandi lófaklapp og fögnuð viðstaddra. -gpp Kveikt á jólaljósunum í Árborg

RkJQdWJsaXNoZXIy NDk5NDcz