2474

SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 Sveitarfélagið Árborg er fjölmennasta sveitarfélagið á Suðurlandi. Það varð til við sameiningu Eyrarbakkahrepps, Sandvíkurhrepps, Selfossbæjar og Stokkseyrarhrepps árið 1998 og er því 20 ára á þessu ári. Gríðarleg íbúafjölgun hefur orðið á skömmum tíma í sveitarfélaginu og eru íbúar nú orðnir rúmlega 9000. Einn af helstu kostum sveitarfélagsins eru fjölbreyttir búsetukostir í dreifbýli, búgarðabyggð, sjávarþorpum við ströndina og stóru þéttbýli. Í Svf. Árborg er gott mannlíf. Þar er miðstöð þjónustu á Suðurlandi, góðir skólar ásamt öflugu íþrótta-, félags- og menningarlífi. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í sveitarfélaginu á undanförnum misserum sem hefur ýmis spennandi tækifæri og áskoranir í för með sér. Sveitarfélagið Árborg óskar eftir að ráða mannauðsstjóra. Mannauðsstjóri leiðir þróun mannauðsmála og heyrir beint undir bæjarstjóra. Um nýtt starf er að ræða og verður því í verkahring nýs starfsmanns að móta starfið í samráði við bæjarstjóra. Um er að ræða fullt starf og ráðið verður í starfið frá og með áramótum. Störfin hæfa jafnt konum sem körlum. Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Sveitarfélagið Árborg óskar eftir að ráða tæknimann til starfa á skipulags- og byggingardeild sveitarfélagsins. Um er að ræða fullt starf og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Upplýsingar veita: Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is Inga Steinunn Arnardóttir, inga@hagvangur.is Helstu verkefni: • Ábyrgð á þróun og eftirfylgni með mannauðsstefnu Árborgar • Ábyrgð á þróun og innleiðingu á mannauðsferlum • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur varðandi ráðningar, þjálfun, fræðslu og þróun starfsmanna • Aðkoma að launasetningu og starfsmati • Þátttaka í stefnumótun fyrir sveitarfélagið í heild Starfssvið: • Yfirferð aðaluppdrátta, sérteikninga og annarra hönnunargagna • Annast áfanga- og stöðuúttektir • Annast öryggis- og lokaúttektir • Skráning fasteignaupplýsinga og viðhald fasteignagjaldagrunns • Skráningar í gagnagrunna • Annast almenna upplýsingagjöf varðandi byggingarmál • Vinna við áætlunargerð og eftirfylgni áætlana • Aðkoma að skipulagsmálum • Almenn störf á skipulags- og byggingardeild Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf á sviði mannauðsmála, vinnusálfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi • Yfirgripsmikil reynsla af mannauðsmálum • Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu æskileg • Þekking á kjarasamningum og reynsla af túlkun þeirra • Framúrskarandi samskiptahæfni • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi • Skipulagshæfni og færni til að vinna í hóp Menntunar- og hæfniskröfur: • BS-gráða í verk- eða tæknifræði á byggingarsviði eða nám í byggingafræði • Víðtæk og góð reynsla af byggingarmálum • Reynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg • Góð þekking og færni í Word og Excel • Þekking á AutoCAD æskileg • Kunnátta í skjalavistunarkerfi ONE æskileg • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagsfærni • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum MANNAUÐSSTJÓRI TÆKNIMAÐUR Umsóknarfrestur er til og með 14. nóvember nk. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

RkJQdWJsaXNoZXIy NDk5NDcz