2457

14 Miðvikudagur 11. júlí 2018 DAGSKRÁIN - Fréttablað Suðurlands N ú er farið af stað glænýtt verkefni hjá Umf. Þjótanda í Flóahreppi sem ber heitið „Sá ég spóa suð ' r í Flóa“. Verkefnið hent- ar jafnt fjölskyldum sem einstakl- ingum á öllum aldri og stendur yfir í júlí og ágúst í sumar. Sex mismunandi staðir Kynntir eru til sögunnar sex mis- munandi staðir í Flóahreppi. Á hverjum stað er staðsettur póst- kassi og staur. Í póstkassanum er gestabók og skriffæri. Þar skrifa allir viðstaddir nöfnin sín og ganga svo frá öllu aftur. Þann 1. septem- ber verður öllum gestabókunum safnað saman og farið yfir niður- stöður. Nöfn þeirra sem ritað hafa í a.m.k. 5 gestabækur af 6 lenda í potti. Dregnir verða svo út tveir vinningshafar, og hljóta þeir veg- legan vinning, fjölskyldupassa á Eldfjallasetrið á Hvolsvelli. Sá ég spóa suð'r í Flóa Glænýtt útivistarverkefni Ungmennafélagsins Þjótanda sumarið 2018 Náttúruskoðun og holl hreyfing fyrir alla fjöl- skylduna Tilgangur „Sá ég spóa suð ' r í Flóa“ er fyrst og fremst að fá fjölskyld- ur og einstaklinga til að fara út í náttúruna og stunda holla hreyf- ingu. Um leið er hægt að komast vítt og breitt um fallegt sveitar- félag, sjá staði sem ekki hafa verið heimsóttir áður, og upplifa ný sjónarhorn. Sniðugt getur verið að hafa með sér fugla- eða blóma- bók til að glugga í á leiðinni. Upp- lagt er að taka með sér nesti fyrir krakkana og hafa góða skapið meðferðis, því oft þarf ekki að leita langt yfir skammt, né kosta miklu til, til að skapa góðar minn- ingar. Verkefnið verður einnig kynnt á Facebook-síðu félagsins og þar undir er upplagt að setja inn myndir af göngugörpum. Göngukort sem sýnir staðina sem hægt er að ganga á. Einn af þeim stöðum sem gengið er á í útivistarverkefni Umf. Þjótanda er Loftstaðahóll. Mynd: Guðmunda Ólafsdóttir. Útivistarverkefni Umf. Þjótanda í Flóahreppi júlí – ágúst 2018 Hellaskoðun á Haugi Lagt við Gaulverjabæjarkirkju og genginn vegslóði sem liggur í suðurátt. Farið í gegnum járn- hlið og inn í Haugsland. Eftir rúmlega 300 metra göngu er hægt að fara að svipast um eftir hellinumog póstkassa við hellis- munnan. Athugið að fara var- lega í kringum og inni í hellin- um. Ofan á honum er gat sem litlir einstaklingar gætu mögu- lega dottið ofan í. Þeir sem vilja fá lengri göngu geta tekið veg- slóðann sem liggur til vinstri eftir að komið er fram hjá kirkj- unni og gengið í kringum Bæj- arvatn. Leiðin í kringum vatnið er þýfð og yfir tvær girðingar að klofa en skemmtileg engu að síður. Leiðin í kringum vatnið er um 3 km löng. Fjöruferð við Loftsstaði Já, það er hægt að anda að sér sjávarseltu í Flóahreppi. Lagt við íbúðarhúsið á Vestri-Lofts- stöðum og gengið á Loftsstaða- hól sem ætti ekki að fara fram- hjá neinum. Við hólinn finnið þið póstkassa en þeir sem vilja geta gengið lengra út á sandinn og athugað hverju sjórinn hefur skolað á land. Fjallganga að Uppsölum? Lagt við íbúðarhúsið í Uppsölum (þar býr enginn þessa dagana). Genginn vegslóði til suðvesturs, framhjá litlum skógræktarreit við veginn og upp á holt sem kallað er Háaleiti. Þar efst uppi liggja jarðamörk Uppsala og Sölvholts og þar er gott útsýni til allra átta. Hver veit nema fólk sjái Selfoss frá sjónarhorni sem það hefur aldrei séð áður. Leiðin upp á hæðina er um 600 m löng og á Háaleitinu má finna póstkassa. Hvítáin skoðuð við Einbúa Lagt við hliðið að Einbúa, gengið meðfram hestagirðingunni og það- an niður að Hvítá. Gengið með- fram ánni í norðurátt þangað til komið er að klettum sem kallast Skotaberg. Þar er að finna póst- kassa. Athugið því næst hvort þið getið veifað einhverjum í Gríms- nesinu áður en þið gangið til baka. Bónusstig fyrir þá sem hlaupa upp á Einbúaklettinn að göngu lokinni! Fornleifarannsókn við Þjótanda Bílnum lagt rétt áður en kemur að gömlu Þjórsárbrúnni. Gengið niður að á og upp með ánni þangað til þið finnið póstkassa. Þar sem póstkassinn stendur fór fram fornleifauppgröftur árið 2008 þar sem grafinn var upp skáli sem var að hluta til frá landnámsöld. Skógarferð í Skagás Ekið í gegnum hliðið og lagt neðan við skógræktina. Gengið upp fyrir þéttasta skóginn. Þar fyrir ofan tekur við yngri skóg- rækt. Undir þríhyrningslaga kletti er búið að koma fyrir grilli og þar er upplagt að grilla (hafið með ykkur kol og olíu). Frá grillinu sést til póstkassans. Eftir að búið er að skrifa í gestabókina má leika sér í skóginum að vild. Staðirnir í Flóahreppi semhægt er að ganga á: Bændur athugið! Vegna mikillar eftirspurnar, óskum við eftir nautgripum til slátrunar. Pantanir í síma 512 1100 – slh@slh.is Sláturhúsið Hellu hf. ÚTBOÐ DÆLUSTÖÐ AUSTURVEGI 67, SELFOSSI Fyrir hönd Selfossveitna bs. er óskað eftir tilboðum í að byggja aðaldælustöð hitaveitu Selfossveitna á Selfossi. Um er að ræða uppsteypt hús með einhalla þaki við núverandi hitaveitugeymi. Dælustöðin skiptist í dælusal, lágspennurými, dreifistöð á vegum HS Veitna, stjórn- herbergi, rafstöðvarrými, snyrtingu og tengigang yfir í núverandi hús. Á efri hæð verður loftræstisamstæða. Í dælusal verður gert ráð fyrir fjórum heitavatnsdælum með tilheyrandi búnaði. Í lofti verður 5,0 tonna brúkrani. Utanhúss verða lagðar DN 300–600 hitaveitulagnir sem tengjast núverandi stofnlögnum auk annarra tilheyrandi lagna sem og nauðsynlegs frágangs yfirborðs. Nokkrar magntölur: - Jarðvinna: 2.000 m³ - Mót: 1.550 m² - Járnbending: 40 tonn - Steypa: 300 m³ - Klæðning utanhúss: 380 m² - Hitaveitulagnir utanhúss: 380 m Dælustöð skal vera fullfrágengin og tilbúin til rekstrar 15. nóvember 2019. Heildarverklok eru 15. júní 2020. Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með 11. júlí 2018. Senda skal ósk um gögn á tölvupóstfang verkis.selfoss@verkis.is með nafni fyrirtækis, heimilis- fangi og síma. Kynningarfundur verður haldinn á verkstað 19. júlí kl. 13:00. Tilboðum skal skila til Verkís hf., Austurvegi 10, 800 Selfossi fyrir kl. 13:00, 8. ágúst 2018 , en þá verða þau opnuð að viðstöddum fulltrúum verkkaupa og þeim bjóðendum sem þess óska.

RkJQdWJsaXNoZXIy NDk5NDcz