2452

2 Miðvikudagur 6. júní 2018 DAGSKRÁIN - Fréttablað Suðurlands B rautskráning og skóla- slit Menntaskólans að Laugarvatni var laugardaginn 26. maí sl. að viðstöddu fjöl- menni en um 600 manns voru viðstaddir athöfnina að þessu sinni. Brautskráðir voru sextíu og fimm nýstúdentar. Af þeim voru tuttugu og tveir úr 4. bekk, sext- án af félagfræðabraut og sex af náttúrufræðabraut, og fjörtíu og þrír úr 3. bekk, tuttugu og tveir úr félags- og hugvísindabraut og tuttugu og einn úr náttúruvís- indabraut. Þetta er mesti fjöldi sem hefur verið útskrifaður á skólaslitum í sögu skólans, enda í fyrsta sinn sem nemendur í þriggja ára kerfi eru útskifaðir. Dagskrá var hátíðleg og hefð- bundin. Halldór Páll Halldórs- son skólameistari flutti ræðu, kór skólans söng við athöfnina og Áslaug Harðardóttir, staðgeng- Fjölmenni við brautskráningu og skólaslit ML ill skólameistara og áfangastjóri skólans, flutti annál skólaársins. Fulltrúi 20 ára júbílanta hélt tölu og afhenti skólameistara gjafir afmælisárganga. Gjafir júbílanta voru að þessu sinni fjárstyrkir til kórsins, myndasíðu NEMEL og í Styrktarsjóð Kristins og Rann- veigar. Fjörutíu ára júbílantar færðu skólanum málverk til minningar um Guðrúnu Erlu Ingvadóttur, skólsystur þeirra, sem lést fyrr í vor. Ávarp nýstúdenta flutti Sigrún Birna P. Einarsson fv. stallari. Skólameistari afhenti Guðjóni Elíssyni viðurkenningu fyrir alúð og einstakt framlag hans við endurgerð skólapjalda skólans og sleit að því loknu skóla í 65. sinn. Dux nýstúdenta fjórða bekkjar er Arndís Hildur Tyrf- ingsdóttir frá Ljónsstöðum í Flóa með 9,17 í vegið meðaltal allra áfanga áranna fjögurra og semidux Rúnar Guðjónsson frá Melum í Hrunamannahreppi með vegið meðaltal 9,12. Dux nýstúdenta þriðja bekkj- ar er Írena Rut Stefánsdóttir frá Hveragerði með 9,35 í vegið meðaltal allra áfanga áranna þriggja og semidux Bjarnveig Björk Birkisdóttir frá Brekku í Þykkvabæ með vegið meðaltal 9,23. Dux scholae nýliðins vetr- ar með einum aukastaf, er Írena Rut Stefánsdóttir frá Hvera- gerði með einkunnina 9,9. Semi duces scholae eru tveir fyrstu bekkingar en það eru þær Anna Björg Sigfúsdóttir frá Borgar- felli í Skaftártungu og Helga Margrét Óskarsdóttir frá Hruna í Hrunamannahreppi, báðar með einkunnina 9,4. Í ellefta sinn voru afhentir styrkir úr styrktarsjóði fyrr- verandi skólameistarahjóna, Kristins Kristmundssonar og Rannveigar Pálsdóttur, en styrki úr honum hljóta, sam- kvæmt skipulagsskrá sjóðsins, nemendur Menntaskólans að Laugarvatni sem sýnt hafa frá- bæran dugnað, hæfileika og ástundun í námi. Að þessu sinni hlutu styrk þau Arndís Hildur Tyrfingsdóttir frá Ljónsstöðum, Rúnar Guðjónsson frá Melum, Dana Heiða Becker frá Teigi í Laugarási, Írena Rut Stefáns- dóttir frá Hveragerði, Bjarnveig Björk Birkisdóttir frá Brekku og Ragnheiður Olga Jónsdóttir frá Laugarvatni. Fjöldi nýstúdenta hlaut viðurkenningu í bókaformi fyrir námsárangur í einstökum grein- um og í heild svo og fyrir störf að félagsstörfum og í þágu skól- ans. Á útskrift var Guðjóni Elís­ syni, en hann er stúdent frá ML 1978, færður skjöldur með merki skólans og áletruninni: „Þakkir fyrir alúð og einstakt framlag við endurgerð skóla- spjalda Menntaskólans að Laugarvatni“ en Guðjón vann upp með stafrænum hætti fjög- ur skólaspjöld með myndum af nemendum skólans á árabilinu 1975 til 1984, spjöld sem voru farin að láta mikið á sjá. Ráðist var í verkið að frumkvæði 20 ára júbilanta árið 2009 og vann Guðjón það til dagsins í dag í hjáverkum af einstakri alúð. Skólameistiri ML veitir Guðjóni Elís­ syni þakklætisvott fyrir endurgerð skólaspjalda ML. F yrrverandi skólameistarahjón, Kristinn Kristmundsson og Rannveig Pálsdótt- ir, stofnuðu styrktarsjóð árið 2007 sem ber heitið Styrktarsjóður Kristins og Rannveigar. Var skipulagsskrá hans staðfest af sýslu- manni þann 30. ágúst það ár. Í fimmtu grein skipulagsskrár sjóðsins stendur: „Styrki úr sjóðnum skulu hlóta nemendur Menntaskól- ans að Laugarvatni sem sýnt hafa frábæran dugnað, hæfileika og ástundun í námi.” Í sjóðsstjórn eru skv. skipulagsskránni Ari Páll Kristinsson, elsti afkomandi þeirra hjóna, Halldóra Friðjónsdóttir formaður Nemendasambands ML, NEMEL, og skóla- Styrkir veittir úr Styrktarsjóði Kristins og Rannveigar meistari sem jafnframt er formaður stjórnar. Í ár var veitt úr sjóðnum í ellefta sinni. Stjórn sjóðsins ákvað að veita eftirfarandi nemendum styrki úr sjóðnum, hver að upp- hæð 50.000 krónur. Úr fjórða bekk: Arndís Hildur Tyrfings- dóttir, frá Ljónsstöðum í gamla Sandvíkur- hreppi, Rúnar Guðjónsson, frá Melum á Flúðum og Dana Heiða Becker, frá Teigi í Laugarási, Biskupstungum. Úr þriðja bekk: Írena Rut Stefánsdóttir, frá Hveragerði, Bjarnveig Björk Birkisdótt- ir, frá Brekku í Þykkvabæ og Ragnheiður Olga Jónsdóttir, úr Reykjavík. Frá vinstri: Halldór Páll skólameistari, Ragnheiður Olga, Bjarnveig Björk, Írena Rut, Dana Heiða, Rúnar, Arndís Hildur og Rannveig Pálsdóttir, fyrrverandi skólameistarafrú. FORSALA Á TIX.IS OG Í GALLERÍ OZONE SELFOSSI BIRGITTA HAUKDAL · TODMOBILE · FRIÐRIK DÓR · PÁLL ÓSKAR JÓIPÉ OG KRÓLI · STEBBI HILMARS · ALBATROSS · Í SVÖRTUM FÖTUM STUÐLABANDIÐ · DAÐI FREYR · HR. HNETUSMJÖR · DJ RIKKI G LOVE GURU · DJ SIGGI HLÖ JÓIPÉ & KRÓLI · BRÚÐUBÍLINN · BMX BROS · SIRKUS ÍSLANDS VILLI VÍSINDAMAÐUR · ÍÞRÓTTAÁLFURINN OG SOLLA STIRÐA SPRELL TÍVOLÍ · AXEL O & CO · VELTIBÍLINN · EDDA OG FLEIRA FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ KÓTELETTUNNAR 2018 - FRÍTT INN

RkJQdWJsaXNoZXIy NDk5NDcz