Föstudagur, 24. maí, 2013
   
Letur

Af sveitarstjónarmálum í Bláskógabyggð

Stundum langar mann að ráða meiru en maður raunverulega ræður. Stundum væri gott að geta haft meiri stjórn á hlutunum, eða öllu heldur geta haft vald til að koma í veg fyrir atburði, eins og þegar Íslandspóstur ákvað að nú væri tímabært að loka póstafgreiðslunni á Laugarvatni. En því miður ná völd sveitarstjórnarmanna ekki inn á borð ráðamanna í fyrirtækjum og stofnunum. Í bréfi frá Póst- og fjarskiptastofnun sem tekið var fyrir á 123. fundi byggðaráðs Bláskógarbyggðar þann 28. mars, var óskað eftir umsögn Bláskógabyggðar vegna fyrirhugaðrar lokunar Íslandspósts á póstafgreiðslu á Laugarvatni. Byggðaráð bókaði:
Byggðaráð Bláskógabyggðar mótmælir harðlega þeirri þjónustuskerðingu sem felst í fyrirhugaðri breytingu. Ljóst er að ef af henni verður mun það leiða af sér að íbúar svæðisins þurfi að sækja ábyrgðarbréf og böggla í auknu mæli til afgreiðslunnar á Selfossi, en þangað er yfir 40 kílómetra akstur aðra leiðina. Þetta fyrirkomulag mun því auka akstur með póst fyrir svæðið til muna, bæði fyrir íbúa og Íslandspóst, sem er óskiljanleg stefna á þessum tímum þegar reynt er eftir mætti að fækka kolefnissporum í umhverfinu og gæta hagræðingar.

Fundargerð byggðaráðs var staðfest á 137. fundi sveitarstjórnar þann 12. apríl og í kjölfarið var bókunin send sem athugasemd til Póst- og fjarskiptastofnunnar. Þaðan berst svar dagsett 31. maí og bréfið tekið fyrir á 139. fundi sveitarstjórnar þann 6. júní. Innihald þess bréfs er í stuttu máli í fullu samræmi við titil þess: Ákvörðun nr. 17/2012 um lokun póstafgreiðslu að Laugarvatni. Stofnunin tekur þar í engu undir athugasemdir sveitarfélagsins, en í öllu undir mótrök Íslandspósts, eins og t.d. (orðrétt úr bréfinu):
... um sé að ræða mjög sambærilegar breytingar og gerðar hafa verið annars staðar á landinu sem sé liður í því að einfalda og straumlínulaga dreifikerfið með það að markmiði að ná fram sem mestri rekstarhagkvæmni.

Og að lokum er niðurstaðan:
... er það mat stofnunarinnar að sú þjónusta sem Íslandspóstur hyggst bjóða íbúum á Laugarvatni fullnægi gæðakröfum laga um póstþjónustu nr. 19/2002, sem og þeim skyldum sem hvíla á fyrirtækinu sem alþjónustuveitanda
... er það niðurstaða Póst- og fjarskiptastofnunar að Íslandspósti skuli heimilt að loka afgreiðslustað fyrirtækisins að Laugarvatni ...

Svo mörg voru þau orð – og niðurstaða ótvíræð. Sveitarstjórn Bláskógabyggar gerði allt sem í hennar valdi stóð til að hafa áhrif á þessa ákvörðun en hafði því miður ekki erindi sem erfiði.
Fyrrnefnd fundargerð byggðaráðs frá 28. mars var eins og áður segir staðfest á sveitarstjónarfundi Bláskógabyggðar sem haldinn var á Laugarvatni þann 12. apríl í ML, eftir heimsókn mennta- menningarmálaráðherra Katrínar Jakobsdóttur á Laugarvatn. Í þeirri heimsókn var gengið með ráðherra um Laugarvatn og mikil áhersla lögð á að kynna henni þær djúpu rætur og miklu hefð sem Laugarvatn hefur sem skólastaður. Aðaláhersla var lögð á að ráðherra heimsækti leik-, grunn-, og háskólann og kynnti sér það metnaðarfulla starf sem þar fer fram, en hún hafði heimsótt menntaskólann ekki svo löngu áður. Þó var ekki síst mikilvægt að ráðherra kæmi inn í Héraðsskólann, sæi það sem þar hefur verið framkvæmt og áttaði sig á hversu sárlega þessi bygging byði eftir hlutverki. Hið, því miður, árangurslausa leigusamningaferli sveitarfélagsins og ríkisins var rifjað upp og farið fram á að nú myndi fara að finnast lausn. Ráðherra tók vel undir þessi sjónarmið og í kjölfarið, til að árétta og ítreka hvað sveitarfélaginu lægi á þessum samningi var bókað á sveitarstjónarfundinum undir 7. lið:
Húsnæðismál embættis skipulags- og byggingarfulltrúa.
Umræða varð um húsnæðismál embættis skipulags- og byggingafulltrúa Uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps. Undanfarin misseri hefur verið leitað eftir því við ríkisvaldið að fá aðstöðu leigða í húsnæði Héraðsskólans fyrir embættið. Þær samningaviðræður hafa ekki skilað þeim árangri sem vænst var. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir því samhljóða að ráðstafa allri efri hæð húsnæðisins að Dalbraut 12 undir starfsemi embættisins og jafnframt að ráðast í breytingar á húsnæðinu svo það henti starfseminni sem best. Gert er ráð fyrir að embættið fái alla efri hæð hússins til afnota frá og með 1. júlí á þessu ári.

Þessi bókun var send ráðherra og vonast eftir einhverjum aðgerðum. Það hefur ekki orðið. Síðastu drög að leigusamningi ríkisins varðandi Héraðsskólahúsið höfðu þá verið tekin fyrir á fyrrnefndum 123. fundi byggðaráðs þann 28. mars. En þau drög reyndust allsendis óaðgengileg fyrir sveitarfélagið, þar sem slíkur samningur hefði ótvírætt skuldbundið sveitarfélagið fjárhagslega meira en ásættanlegt var. Bókað var:

Héraðsskólahúsnæðið.
 Lögð fram drög að leigusamningi frá Fasteignum ríkisins um Héraðsskólann á Laugarvatni. Einnig lagt fram reiknilíkan sem ber saman þessa útfærslu við fyrri tillögur að leigusamningi. Byggðaráð samþykkir samhljóða að ekki sé grundvöllur fyrir frekari viðræðum við ríkið um leigu á Héraðskólahúsnæðinu í ljósi síðasta leigutilboðs ríkisins.

Eins og áður sagði hafa engin viðbrögð borist frá ríkinu varðandi Héraðsskólann, og er það miður. Eftir situr að Skipulags- og byggingafulltrúaembættið þarf meira húsnæði, og eins og þeir vita sem fylgst hafa með, þá hefur verið hart sótt að staðsetningu embættisins á Laugarvatni, þar sem nágrannasveitarfélag okkar hefur ítrekað boðið upp á húsnæði á þess vegum. Allir sveitarstjónarmenn í Bláskógabyggð hafa verið afar sammála og samstíga um að embættið verði ekki flutt frá Laugarvatni og þá úr Bláskógabyggð. Benda má á að samkvæmt Ársskýrslu Skipulags- og byggingarfulltrúaembættis uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps bs. fyrir árið 2011, voru á því ári sex fastráðnir starfsmenn hjá embættinu.

Þannig standa málin núna og nú í sumar verður ráðist í að betrumbæta að aðlaga alla efri hæð Dalbrautar 12, og núverandi aðsetur Skipulags- og byggingafulltrúaembættisins fyrir embættið. Með þessarri aðgerð var fyrirsjáanlegt að læknar Laugarásslæknishéraðs yrðu að víkja úr þeirri aðstöðu sem þeir hafa haft undanfarin ár. Ljóst var að hægt yrði að bjóða þeim aðstöðu á neðri hæð hússins, en því miður vildu þeir það ekki. Auk þess var leitað víða um þorpið, og haft var samband við marga aðila í leit að ákjósanlegu húsnæði undir starfsemina, en það húsnæði fékkst ekki, og enn og aftur, það er miður. Og enn og aftur gæti maður þegið það að geta ráðstafað og stjórnað að vild fyrirtækjum og stofnunum og þeirra ákvörðunum. En Heilbrigðisstofnun Suðurlands og starfsmenn hennar eru ekki á valdsviði sveitarstjórnarmanna í Bláskógabyggð. Ef ekki verður nein breyting á,  munu því læknar og annað starfsfólk HSU í uppsveitum hér eftir einungis vera með starfsaðstöðu í Laugarási og sinna öllum íbúum uppsveita þaðan. En að sjálfsögðu stendur læknum ennþá til boða neðri hæð Dalbrautar 12.

Þannig er því staðan nú að opinber þjónusta innan Bláskógabyggðar dreifist á þá þrjá þéttbýlisstaði sem eru innan sveitarfélagsins. Reykholt hefur stjórnsýsluna, Laugarvatn embætti skipulags- og byggingafulltrúa og Laugarás heilbrigðisþjónustuna.
Nú í ár fagnar Bláskógabyggð 10 ára afmæli, og teljast barnsskórnir þá líklega að töluverðum hluta vera orðnir slitnir. Við íbúar allir megum vera ánægð með þetta sameinaða sveitarfélag. Hér eru margar af fallegustu náttúruperlum Íslands, og við erum óendanlega rík af mannauði. Við eigum góða framsækna og metnaðargjarna skóla á öllum skólastigum, hér hefur fólk sett á fót fyrirtæki, verslanir, ferðaþjónustu, garðyrkju, hér er stundaður mikill og góður landbúnaður  – og allt vex þetta og dafnar. Við höfum hér tvö ný umferðarmannvirki – Lyngdalsheiðarveginn nýja, en með tilkomu hans opnaðist verulega á samgöngur innan sveitarfélagsins, m.a. auðveldaði hann til muna skólaakstur úr Þingvallasveit hinni gömlu og gerði þeim íbúum Bláskógarbyggðar kleift að taka aukinn þátt í félags- og íþróttastarfi með öðrum íbúum. Annað umferðarmannvirkið er Hvítarárbrúin, sem á hinn bóginn auðveldar til muna samskipti við nágrannasveitarfélag.

Að lokum – ágætu íbúar Bláskógarbyggðar, við skulum hlúa vel að okkur og þeim sem í kringum okkur eru. Við skulum halda áfram að horfa fram á veginn, finna okkur ný tækifæri, framkvæma - og framtíðin verður okkar, - okkar allra íbúa í Bláskógabyggð.

Valgerður Sævarsdóttir og Helgi Kjartansson, sveitarstjónarmenn í Bláskógabyggð

Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson