Miðvikudagur, 22. maí, 2013
   
Letur

Deilt um kaup á nýjum bíl fyrir Hitaveitu Flúða

Á síðasta fundi sveitarstjórnar Hrunamannahrepps voru kynnt ný bílakaup veitustjórnar Hitaveitu Flúða. Af því tilefni kynnti Ragnar Magnússon, oddviti bréf frá Gunnari Þór Jóhannessyni og Esther Guðjónsdóttur, sveitarstjórnarmanna  þar sem fram koma mótmæli viðsamþykkt veitustjórnar um val á bifreið vegna endurnýjunar á bifreið fyrir Hitaveitu Flúða. Á fundinn mætir Hannibal Kjartansson veitustjóri og gerði grein fyrir kaupunum. Esther og Gunnar vilja bóka mótmæli við samþykkt meirihluta veitustjórnar um að kaupa nýjan Ford 350 fyrir Hitaveitu Flúða. Bíllinn sem hitaveitan á núna er ekki ekinn nema um 100 þús. km. og á mikið eftir. Það þarf að gera við hann sem flokkast undir eðlilegt viðhald. Ekki er gert ráð fyrir í fyrirhuguðum kaupum að hægt sé að láta gamla bílinn upp í nýjan, og alls ekki sjálfgefið að hægt sé að losna við þann gamla fyrir ásættanlegt verð. Ódýrast og fullnægjandi er að eiga gamla bíllinn áfram. Ef kaupa á nýjan bíl væri eðlilegra að kaupa ódýrari bíl sem er ódýrari í rekstri. Meirihluti hreppsnefndar upplýsti í þessu sambandi að þegar búið er að draga frá VSK og væntanlegt söluverð af eldri bifreið frá muni kostnaður verða í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun Hitaveitunnar. Jafnframt er bent á að hin nýja bifreið eyðir mun minna eldsneyti, er umhverfisvænni og fjárhagslegt hagræði sé af því endurnýja bifreiðina á þessu tímapunkti þar sem eldri bifreið er að fullu afskrifuð. Einnig er bent á að væntanlegar breytingar á vörugjöldum í vor hefðu í för með sér að umrædd bifreið myndi hækka verulega. Þá er á það bent að nauðsynlegt er fyrir sveitarfélagið að eiga öflugan tækjabíl vegna samnýtingar við Slökkvilið Hrunamanna og annarra veitna sveitarfélagsins.

 

 

Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson