Árborg frestar ákvörðun um úrsögn úr Skólaskrifstofu Suðurlands til 3. maí
Af hverju samþykktuð þið tillögu S og V-lista ?
"Frá upphafi hefur málið verið unnið af miklum heilindum og í algjörri samvinnu og samráði við alla bæjarfulltrúa og kjörna fulltrúa í fræðslunefnd. Haldnir hafa verið samráðsfundir þar sem tillögur fræðslustjóra varðandi þetta mál voru kynntar, málin hafa verið rædd fram og til baka án þess að nokkur flokkspólitík kæmi þar við sögu og okkur er í mun að halda þessari umræðu á þeim nótum. Af þeim sökum þótti okkur rétt að koma til móts við óskir fulltrúa S og V lista og fresta ákvörðuninni til 3. maí nk".
Hver er ástæðan fyrir því að Árborg vill fara út úr Skólaskrifstofunni og er full eining um þá ákvörðun í meirihlutanum ?
"Þessi hugmynd er alls ekki ný af nálinni og hefur verið til skoðunar hjá flestum bæjarfulltrúum undanfarin kjörtímabil. Það er mikilvægt að það komi fram að með úrsögn erum við alls ekki að lýsa yfir óánægju með þjónustu skólaskrifstofunnar. Það hefur þó vissulega verið ákveðin ónægja með það að skólaskrifstofan hefur ekki séð sér fært að skoða hugmyndir okkar um sparnað og þykir okkur það miður, sérstaklega í ljósi þess að aðrar stofnanir sem sveitarfélagið rekur hafa þurft að herða sultarólina undanfarin ár. Það er þó ekki það sem málið snýst um. Við teljum einfaldlega að við getum sinnt þessum málum með myndarlegum hætti sjálf eins og mörg sveitarfélög af svipaðri stærð og Árborg eru að gera. Með því að taka alla sérfræðiþjónustuna til okkar skapast miklir möguleikar til meiri samþættingar mismunandi þjónustuþátta á fræðslusviði, félagsþjónustusviði og íþrótta- og tómstundasviði. Þá erum við að tala um þjónustuþætti sem snúa að börnunum, fjölskyldum þeirra og starfsfólki skólanna. Þá miðar nýtt skipulagið einnig að því að styðja enn betur við forvarnarstarf, efla snemmtæka íhlutun og móta saman ný þjónustuúrræði sem þörf er á hér í Árborg. Málið hefur alls ekki verið unnið sem meirihluta/minnihlutamál. Það hefur verið full eining meðal allra bæjarfulltrúa um að skoða málið með þessum hætti, umræðan hefur yfirveguð og þvert á flokkslínur. Vonandi verður hún þannig áfram".
Er eitthvað annað sem þú vilt koma á framfæri varðandi málið ?
"Já, ég hef hingað til verið fylgjandi margvíslegu samstarfi sveitarfélaga og er alveg sannfærð um að með góðum vilja geti sveitarfélögin á Suðurlandi haldið áfram samstarfi á mörgum sviðum. Með úrsögn værum við alls ekki að loka á frekara samstarf tengt skólamálum að mínu mati. Ég frábið mér því að þessi umræða snúist um leigutekjur af húseign SASS, kostnað við sameiginlegt bókhald, hver eigi að halda Stóru upplestrarkeppni grunnskólanna o.s.frv. Umræðan verður að vera á hærra plani og helst algjörlega á faglegum nótum. Heimsendaspár og hótanir varðandi Fjölbrautaskólann og Heilbrigðisstofnunina, eins og lesa má í grein Bjarna Harðarsonar á dfs.is, finnst mér ósmekkleg framsetning. Ég hvet fólk til að kynna sér málið og taka upplýsta ákvörðun í stað þess að vera með upphrópanir af þessu tagi", sagði Sandra Dís.




