Íbúum í Árborg fjölgaði um 45 í janúar og febrúar 2012
Íbúum Sveitarfélagsins Árborgar fjölgaði um 45 fyrstu tvo mánuði ársins, eða í janúar og febrúar 2012. 1. mars voru íbúarnir 7.826 miðað við 7.781 1. janúar, sem þýðir fjölgun upp á 45 íbúa. Skipting íbúa eftir byggðakjörunum sést hér.
Alls 1. mars 2012
Sveitarfélagið Árborg: 7.826
Selfoss: 6.481
Sandvík: 253
Eyrarbakki: 564
Stokkseyri: 514
Óstaðsettir: 14
Alls 1. janúar 2012
Sveitarfélagið Árborg: 7.781
Selfoss: 6.432
Sandvík: 254
Eyrarbakki: 563
Stokkseyri: 520
Óstaðsettir: 12



