Laugardagur, 18. maí, 2013
   
Letur

Sveitastjórnarmál

Bæjarfulltrúum í Árborg fækkað úr níu í sjö - minnihlutinn mótmælir harðlega

Samkvæmt nýrri samþykkt um stjórn Sveitarfélagsins Árborgar er gert ráð fyrir að fækka bæjarfulltrúum sveitarfélagsins úr níu í sjö. Þetta  sætta fulltrúar minnihlutans sig ekki við.

Lesa nánar: Bæjarfulltrúum í Árborg fækkað úr níu í sjö - minnihlutinn mótmælir harðlega

 

Skipulagsmál í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

 

Svo mætti halda að skipulagsmál séu í uppnámi  í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Utanaðkomandi gætu dregið þá ályktun að meirihluti sveitarstjórnar fari offari  gegn íbúunum. Allir sem hafa kynnt sér  skipulagsmálin vita að svo er ekki.

Lesa nánar: Skipulagsmál í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

 

Glæsileg fjárhagsafkoma Sveitarfélagsins Ölfuss

Á síðasta fundi bæjarstjórnar sem haldin var fimmtudaginn 2 maí var tekinn til síðari umræðu ársreikningur fyrir árið 2012.

Lesa nánar: Glæsileg fjárhagsafkoma Sveitarfélagsins Ölfuss

 

Bæjar- og sveitarstjórar landsins fjölmenntu í Rangárþing

Bæjar- og sveitarstjórar landsins með íbúa yfir eitt þúsund mættu á tveggja daga fund og vettvangsferðir í Rangárvallasýslu á fimmtudag og föstudag í síðustu viku í boði sveitarstjórna Rangárþings eystra og ytra.

Lesa nánar: Bæjar- og sveitarstjórar landsins fjölmenntu í Rangárþing

 

Mikilvægum áfanga náð í uppbyggingu Lundar

Mikilvægum áfanga  hefur verið náð í uppbyggingu Lundar, hjúkrunar- og dvalarheimilis á Hellu og aðbúnaði fyrir heilabilaða einstaklinga á Suðurlandi.

Lesa nánar: Mikilvægum áfanga náð í uppbyggingu Lundar

 

Gunnsteinn nýr bæjarstjóri Ölfuss

Bæjarstjórn Ölfuss hefur gengið frá ráðningu nýs bæjarstjóra því á fundi bæjarstjórnar í dag var samþykkt að ráða Gunnstein R. Ómarsson til starfa frá og með 16. maí nk. til enda yfirstandandi kjörtímabils.

Lesa nánar: Gunnsteinn nýr bæjarstjóri Ölfuss

 

Þegar stjórnmálamaður þegir

Þegar stjórnmálamaður þegir er hann yfirleitt bara að bíða eftir því að komast að. Sjaldgæfara er að menn hlusti í alvörunni á það sem „andstæðingurinn” hefur að segja.

Lesa nánar: Þegar stjórnmálamaður þegir

 

Kynningarfundir um starfsemi SASS og næstu styrkúthlutun

 

SASS – Samtök sunnlenskra sveitarfélaga kynnir starfsemi sína á fundum á Suðurlandi á næstu vikum. Kynnt verður þjónusta sem SASS veitir einstaklingum, fyrirtækjum, sveitarfélögum og félagasamtökum.

 

Lesa nánar: Kynningarfundir um starfsemi SASS og næstu styrkúthlutun

 

Fólki fjölgar og fjölgar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Þjóðskrárupplýsingar úr Granna fyrir Skeiða og Gnúpverjahrepp 1 apríl 2013 sýna að fjöldi íbúa er núna 517 og fer þeim stöðugt fjölgandi eins og sjá má hér að neðan.

Lesa nánar: Fólki fjölgar og fjölgar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

 

59,2 milljónir króna frá ríkinu til verkefna á Suðurlandi

Á föstudaginn s.l. var undirritaður samningur milli SASS (Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga) og ríkis um fjárframlag til landshlutans á grundvelli Sóknaráætlunar Suðurlands. Undirritun samningsins fór fram í Þjóðmenningarhúsinu í Reikjavík að viðstöddum forsætisráðherra Íslands, innanríkisráðherra og fjármálaráðherra sem jafnframt skrifaði undir samninginn fyrir hönd ríkisins.

Lesa nánar: 59,2 milljónir króna frá ríkinu til verkefna á Suðurlandi

 

Opnir íbúafundir á Heimalandi og Hvolsvelli

Sveitarstjórn Rangárþings eystra hefur boðað til opinna íbúafunda  miðvikudaginn 13. mars. Fundirnir verða haldnir kl. 14.00  á Heimalandi og kl. 20.00 í Hvolsskóla á Hvolsvelli.

Lesa nánar: Opnir íbúafundir á Heimalandi og Hvolsvelli

 

HSK fréttir 7. mars 2013

91. héraðsþing HSK á laugardag:

Héraðsþingið haldið í Aratungu í fjórða sinn

91. héraðsþing Héraðssambandsins Skarphéðins verður haldið í félagsheimilinu Aratungu í Biskupstungum á laugardag og hefst stundvíslega kl. 10:00. Afhending þinggagna er frá kl. 9:30. Þing HSK hafa þrisvar sinnum verið haldin áður í Aratungu, árin 1965, 1974 og 1994.

Rétt til setu á þinginu eiga 120 fulltrúar frá 59 aðildarfélögum HSK og tveimur sérráðum sambandsins.

Á þinginu kemur út ríkulega myndskreytt 84 blaðsíðna ársskýrsla um starfsemi HSK á liðnu ári. Auk hefðbundinna þingstarfa verður val á Íþróttamanni HSK 2012 kunngjört á héraðsþinginu.  Fimm manna valnefnd sá um að velja íþróttamann líkt og undanfarin ár, en alls voru 21 íþróttamenn í jafn mörgum greinum tilnefndir. Hafa þeir allir verið boðaðir á verðlaunahátíð HSK sem haldin verður í Aratungu kl. 15:15 á laugardag.

Stjórn HSK mun leggja fram 22 tillögur á þinginu og þá mun kjörnefnd leggja fram tillögu að nefndar- og stjórnarskipan HSK 2012. Allir aðal- og varamenn stjórnar HSK gefa kost á sér til endurkjörs.

Nánari upplýsingar um þingið hafa verið sendar til félaga og ráða. Nánari upplýsingar um þingið, s.s. dagskrá, fulltrúafjölda félaga og tillögur sem lagðar verða fram má finna á heimasíðu HSK, www.hsk.is undir liðnum viðburðir.

Frétt um kvennablakið innan HSK:

Hrunakonur  héraðsmeistarar í fyrsta sinn

Seinni hluti héraðsmóts HSK kvenna í blaki fór fram á Laugarvatni þann 25. febrúar. Þar voru mætt þau 12 lið sem skráðu sig til þátttöku í mótið í ár.

Í 2. deild var spiluð úrslitakeppni eftir að einfaldri umferð milli liðanna lauk. Það var eiginlega bara formsatriði hjá Garpi að mæta og klára leikina í úrslitakeppninni en þær urðu sigurvegarar 2. deildarinnar, töpuðu ekki einni hrinu í öllu mótinu og spila því í 1. deild á nýju blakári. Í öðru sæti urðu síðan Hrunakonur 3 og Hamar 2 tók bronsið.

Í 1. deild hélt umferðin áfram en aðeins var spiluð ein umferð í fyrstu deild til þess að ná fram úrslitum. Þar voru það Hrunakonur 1 sem voru sterkastar og tóku fyrsta sætið og er það í fyrsta sinn sem lið frá Hrunakonum verður HSK meistari í blaki kvenna.  Aðeins lið Dímon-Heklu, sem varð í 2. Sæti, náði að skáka þeim í leiknum þeirra á milli. Lið Hamars 1 lauk mótinu á mikilli siglingu og lönduðu 3. sætinu, aðeins stigi á eftir Dímon-Heklu.

Leikirnir voru flestir nokkuð jafnir þó langt sé síðan undirrituð sá jafn fá leiki fara í oddahrinu. Liðið í neðsta sæti 1. deildarinnar í ár mun spila í 2. deildinni á nýju blakári.

 

Röð liða eftir deildum:

1. deild                 stig

1. Hrunakonur 1       16

2. Dímon-Hekla        13

3. Hamar 1                       12

4. Hrunakonur 2       9

5. UMFL 1                        7

6. UMFL 2                        5

7. Hvöt 1                1 (fellur niður í 2. deild)

 

2. deild

1. Garpur                 (vann sig upp í 1. deild)

2. Hrunakonur 3

3. Hamar 2

4. Hrunakonur 4

5. Hvöt 2

 

Gunnhildur Hinriksdóttir,

formaður blaknefndar HSK.

 

Frjálsíþróttir:

Fjör á héraðsleikum HSK

Héraðsleikar HSK í frjálsíþróttum fyrir keppendur 10 ára og yngri voru haldnir í íþróttahúsinu á Hvolsvelli sl. laugardag.

8 ára og yngri kepptu saman í liðum í svokallaðri þrautabraut og 9 og 10 ára kepptu í hefðbundnum greinum. Í anda stefnu hreyfingarinnar fengu allir jafna viðurkenningu og ekki var getið sérstaklega um árangur einstakra keppenda.

Úrslit frá keppni 9 og 10 ára má sjá á www.fri.is.

 

Grunnskólamót HSK í glímu:

Laugalandsskóli vann þrjá flokka

Grunnskólamót HSK í glímu  fór fram á Hvolsvelli miðvikudaginn 6. febrúar sl. Alls sendu fjórir skólar af sambandssvæðinu 73 keppendur til leiks.

Laugalandsskóli vann þrjá flokka í stigakeppni milli skólana og Bláskógaskóli vann einn flokk. Hér má sjá verðlaunahafa á mótinu.

5.bekkur stúlkur

Arndís Fjóla Arnarsdóttir                        Laugalandsskóla

Hildur Jónsdóttir                                   Laugalandsskóla

Svala Fannarsdóttir                               Hvolsskóla

6.bekkur stúlkna

Sigurlín Franziska Arnarsdóttir                Laugalandsskóla

Rósa Kristín Jóhannsdóttir                      Bláskógaskóla

3.-4. Dóróthea Oddsdóttir                      Hvolsskóla

3.-4. Kristín Sóldís                                Hvolsskóla

7.bekkur stúlkna

Telma Dögg Tyrfinsdóttir                       Laugalandsskóla

Jana Lind Ellertsdóttir                            Laugalandsskóla

Sigríður Magnea Kjartansdóttir                Bláskógaskóla

8.bekkur stúlkna

Annika Rut Arnarsdóttir                         Laugalandsskóla

Halla Rún Erlingsdóttir                            Laugalandsskóla

Vilborg María Ísleifsdóttir                       Laugalandsskóla

9.bekkur stúlkna

Hanna Kristín Ólafsdóttir                        Flóaskóla

Margrét Heiða Stefánsdóttir                    Laugalandsskóla

Birta Þöll                                             Hvolsskóla

10.bekkur stúlkna

Guðrún Inga Helgadóttir                         Flóaskóla

Kristín Lilja Sigurjónsdóttir                      Hvolsskóla

Þórdís Björnsdóttir                                Hvolsskóla

5. bekkur stráka

Karl Jóhann Einarsson                           Bláskógaskóla

Kristján Indriðason                               Hvolsskóla

Finnur Þór Guðmundsson                       Bláskógaskóla

6.bekkur stráka

1.-2. Sindri Ingvarsson                          Hvolsskóla

1.-2. Sölvi Svavarsson                          Bláskógaskóla

3. Sölvi Freyr Jónasson                         Bláskógaskóla

7.bekkur stráka

Smári Valur Guðmarsson                       Laugalandsskóla

Gústaf Sæland                                     Bláskógaskóla

Ágúst Aron Guðjónsson                         Hvolsskóla

8.bekkur stráka

Eiður Helgi Benediktsson                        Laugalandsskóla

Marínó Helgi Benediktsson                      Hvolsskóla

9.bekkur stráka

Þorgils Kári Sigurðsson                          Flóaskóla

Egill Björn Guðmundsson                        Bláskógaskóla

Jón Gunnþór Þorsteinsson                      Flóaskóla

10.bekkur stráka

Sigþór Helgason                                   Laugalandsskóla

Árni Páll Þorbjörnsson                           Laugalandsskóla

Grímur Kristinsson                                Bláskógaskóla

 

Stigakeppni skólanna:

5.-7. bekkur stráka                                   stig

1. Bláskógaskóli                          20,5

2. Hvolsskóli                               17,5

3. Laugalandsskóli                       7

5.-7. bekkur stelpna

1. Laugalandsskóli                       23

2. Hvolsskóli                               15

3. Bláskógaskóli                          13,5

8.-10. bekkur drengja

1. Laugalandsskóli                       20

2.-3. Flóaskóli                                      10

2.-3. Hvolsskóli                           10

4. Bláskógaskóli                          9

8.-10. bekkur stúlkna

1. Laugalandsskóli                       20

2. Hvolsskóli                               16

3. Flóaskóli                                12

 

Fréttapunktar:

HSK tvímenningur í bridds fyrir eldri borgara

Fyrsta HSK mótið í bridds fyrir 67 ára og eldri verður haldið í Selinu á Selfossi laugardaginn 16. mars og hefst kl. 14:00.  Keppnin er tvímenningur og verður keppnisfyrirkomulagið ákveðið þegar fjöldi para liggur fyrir. Skráningar eiga að berast til Svavars Haukssonar í síma 897 7487 og 487 8147 eða til Leifs Österby í síma 893 0671 og 482 3271. Skráningar eiga að berast fyrir næsta laugardag, 9. mars. Keppnisgjald verður 500 kr. á mann.  Boðið verður upp á kaffiveitingar.

Fimleikamót HSK framundan

Vegna ábendinga ákvað fimleikanefnd sambandsins að endurskoða skipulag HSK mótsins í fimleikum í ár.Breyingarnar eru eftirfarandi:

HSK mótið verður úrtaka fyrir Landsmót UMFÍ 2013. Því munu stigahæstu liðin (2 kvk, 2 kk og 2 mix) vinna sér inn þátttökurétt fyrir hönd HSK á komandi landsmóti, sem haldið verður á Selfossi 4. – 7. júlí nk.

Náist ekki að fullskipa þessi sex lið sem keppa munu á landsmóti fyrir hönd HSK mun nefndin senda út tilkynningu til félaga eftir mótið og hvetja félögin að tala saman sín á milli og sameina í lið svo hægt sé að senda 6 lið á landsmótið.

Fyrirkomulag HSK mótsins verður þannig að mótið tvískipt þetta árið.

Fyrri hluti mun vera eins og áður var skipulagður 16. mars n.k. í íþróttahúsinu í Hveragerði og keppa þar byrjendaflokkar og 4. flokkur. Seinni hluti mótsins verður haldinn 5.maí  n.k., staðsetning verður auglýst síðar. Keppnisflokkar þar verða 3. flokkur – mfl, Jafnframt mun HSK meistari verða krýndur á því móti.

Fyrri hluti mótsins verður í Hveragerði og verður því dansgólfið aðeins minna en löglegt keppnisgólf, dómarar munu taka tillit til þess í einkunum.

Tilhlaup á trampólíni skerðist um ca 1,5 meter samkvæmt löglegu tilhlaupi og tilhlaup á fibergólfið verður um 14-16 metrar ( 7-8 hlaupakubbar). Skráningar skulu berast á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir 1. mars 2013.

Seinni hluti mótsins verður haldinn þar sem lögleg tilhlaup og dansgólf verða. Fyrirspurnir, ábendingar og athugasemdir skal sendast skriflega á: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

 

 

Guðmundur Ingi í 100% starf í átta mánuði

 

Meirihluti sveitarstjórnar Rangárþings ytra hefur samþykkt að Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, oddviti fari í 100% starf í átta mánuði, eða frá 1. mars til og með 31. október 2013.

 

Lesa nánar: Guðmundur Ingi í 100% starf í átta mánuði

 

Fúll út í Árborg - Rothögg fyrir Skólaskrifstofuna

 

"Ég er mjög fúll og leiður yfir ákvörðun Árborgar og skil í rauninni ekkert í henni. Úrsögn sveitarfélagsins úr Skólakskrifstofu Suðurlands er algjört rothögg fyrir skrifstofuna enda Árborg með 46%  af hlutdeild skrifstofunnar á sinni hendi.

 

Lesa nánar: Fúll út í Árborg - Rothögg fyrir Skólaskrifstofuna

 

50.000 kr. í tómstundastyrk fyrir 6 til 18 ára

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur samþykkt að allir grunnskólanemendur og  framhaldsskólanemendur frá 6 ára til og með 18 ára búsettir í sveitarfélaginu geti sótt um tómstundastyrk sem nemur allt að 50.000  kr. á árinu 2013 til að stunda íþrótta, æskulýðs eða menningarstarf.

Lesa nánar: 50.000 kr. í tómstundastyrk fyrir 6 til 18 ára

 

Fá afnot af www.selfoss.is

 

Sveitarfélagið Árborg hefur gert samkomulag við samtök verslunar og þjónustu í Árborg um afnot þess síðarnefnda á léninu www.selfoss.is.

Lesa nánar: Fá afnot af www.selfoss.is

 

Sendiherra ESB á Hvolsvelli

Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi, kom í heimsókn í ráðhúsið á Hvolsvelli í gær með fríðu föruneyti. Þar fór hann yfir stöðu mála í Evrópumálunum og svaraði fyrirspurnum frá Ísólfi Gylfa, sveitarstjóra, og Guðlaugu Ósk, formanni byggðarráðs.

Lesa nánar: Sendiherra ESB á Hvolsvelli

 

Hvers vegna vill kennari á Hellu gera kennara við Laugalandsskóla atvinnulausa?

Á íbúafundi Rangárþings ytra sem haldinn var í íþróttahúsinu á Hellu 24. jan. sl. kynnti Guðmundur Ingi Gunnlaugsson oddviti fjárhagsáætlun til næstu fjögurra ára. Síðan var opnað fyrir fyrirspurnir og meðal annars spurt hvort til stæði að loka Lauglandsskóla

Lesa nánar: Hvers vegna vill kennari á Hellu gera kennara við Laugalandsskóla atvinnulausa?

 

Áskorun SASS vegna sorpbrennslustöðvarinnar á Kirkjubæjarklaustri

Stjórn SASS (Samtök sunnlenskra sveitarfélaga) skorar á umhverfisráðuneytið að draga ákvörðun sína um lokun sorpstöðvarinnar á Kirkjubæjarklaustri til baka og heimila sveitarfélaginu að reka sorpstöðina næstu tvö árin.

Lesa nánar: Áskorun SASS vegna sorpbrennslustöðvarinnar á Kirkjubæjarklaustri

 

Nauðsynlegt að byggja hjúkrunarheimili á Selfossi

 

Bæjarráð Árborgar ræddi á síðasta fundi sínum í síma við Óskar Reykdalsson, framkvæmdastjóra lækninga á HSU,  um stöðu mála varðandi nauðsyn þess að byggja hjúkrunarheimili á Selfossi.

 

Lesa nánar: Nauðsynlegt að byggja hjúkrunarheimili á Selfossi

 

44% kosningaþátttaka hjá Sjálfstæðismönnum í Suðurkjördæmi

Alls voru greidd 3988 atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðismanna, sem fór fram á laugardaginn, auðir og ógildir seðlar voru 107 talsins. Kjörsókn var 44 %. Niðurstaða prófkjörsins varð þessi:

Lesa nánar: 44% kosningaþátttaka hjá Sjálfstæðismönnum í Suðurkjördæmi

 

Á að loka Laugalandsskóla ?

Sögur um að meirihlutinn í Rangárþingi ytra hafi ákveðið að loka Laugalandsskóla tröllríða nú húsum í sveitarfélaginu.  Er eitthvað til í þessu? NEI!  Ekkert er hæft í þessum sögum.  Enginn tillaga hefur komið fram eða verið í smíðum um að loka Laugalandsskóla eða nokkrum öðrum skóla í Rangárþingi ytra.

Lesa nánar: Á að loka Laugalandsskóla ?

 

Guðmundi Inga Gunnlaugssyni svarað

Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, oddviti D-listans í Rangárþingi ytra, skrifaði grein í Dagskrána 22. nóvember 2012 þar sem hann setur fram ásakanir og órökstuddar fullyrðingar, byggðar á hans eigin tilfinningu, á hendur fyrrverandi oddvita og sveitarstjóra. Í þessari grein reynir hann að útskýra ástæður fyrir því að hann taldi nauðsynlegt að mynda þurfti nýjan meirihluta í sveitarstjórn Rangárþings ytra með einum fulltrúa Á-lista, Margréti Ýrr Sigurgeirsdóttur.

Lesa nánar: Guðmundi Inga Gunnlaugssyni svarað

 

Gjör rétt - þol ei órétt

Erfitt hefur verið fyrir okkur Á-lista fulltrúa að fá ástæður eða haldbærar skýringar á ákvörðun Margrétar Ýrr Sigurgeirsdóttur um að slíta samstarfi við okkur, Á-listann í Rangárþingi ytra, og mynda meirihluta með D-lista.  Þetta gerir hún gegn afgerandi niðurstöðu í síðustu sveitarstjórnarkosningum þar sem 494 íbúar kusu Á-listann en ekki D-listann, sem fékk aðeins 360 atkvæði.

Lesa nánar: Gjör rétt - þol ei órétt

 

Oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps fúll út í sitt fólk

 

Á síðasta fundi sveitarstjórnar Skeiða og Gnúpverjahrepps var m.a. lagt fram svar við bréfi frá Skipulagsstofnun dags. 1.10.2012 varðar deiliskipulag fyrir minkabú að Ásum, Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Lesa nánar: Oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps fúll út í sitt fólk

 

Elfa Dögg Þórðardóttir - Yfirlýsing vegna afsagnar

 

"Undanfarin ár hef ég unnið af heilum hug í þágu sveitarfélagsins Árborgar og fyrir sveitarfélögin á Suðurlandi sem formaður Samtaka Sunnlenskra sveitarfélaga.   Það hefur verið ánægjulegt að koma á fót ýmsum verkefnum í Árborg sem og á Suðurlandi enda eru tækifærin óteljandi og ekki síður skemmtileg.

Lesa nánar: Elfa Dögg Þórðardóttir - Yfirlýsing vegna afsagnar

 

Selfossvirkjun heitasta málið í bæjarstjórn Árborgar - óskað eftir kostnað við verkefnið

Málefni Selfossvirkjunar voru augljóslega heitasta málið á síðasta fundi bæjarstjórnar því þar gengu bókanir á víxl.

Lesa nánar: Selfossvirkjun heitasta málið í bæjarstjórn Árborgar - óskað eftir kostnað við verkefnið

 

Alltof há laun nýs starfsmanns á Hellu ?

Á síðasta fundi hreppsnefndar Rangárþings ytra var m.a. lagður fram ráðningarsamningur við Harald Birgi Haraldsson, sem sviðsstjóri umhverfis-, eigna- og tæknisviðs Rangárþings ytra. Starfið felur m.a. í sér umsjón með skipulags- og byggingarmálum.

Lesa nánar: Alltof há laun nýs starfsmanns á Hellu ?

 

Framboðsyfirlýsing 5. sæti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Ég, Friðrik Sigurbjörnsson frá Fagrahvammi í Hveragerði hef ákveðið að gefa kost á mér í 5. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar.

Lesa nánar: Framboðsyfirlýsing 5. sæti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

 

Hættir sem formaður SASS

Elfa Dögg Þórðardóttir, formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) hefur ákveðið að hætta sem formaður samtakana á ársfundi þeirra, sem haldinn verður í október á Hellu.

Lesa nánar: Hættir sem formaður SASS

 

Talþjálfun í Rangárþingi ytra

Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur ákveðið að bæta þjónustu við börn í leikskólum og grunnskólum sveitarfélagsins með tal- og málþroskavanda. Ráðinn hefur verið talmeinafræðingur, Álfhildur Þorsteinsdóttir, og er hún nú þegar farin að sinna talþjálfun barna í leikskólum sveitarfélagsins.

 

Lesa nánar: Talþjálfun í Rangárþingi ytra

 

Starfsíþróttir á Töðugjöldum á Hellu

Á Töðugjöldum sem haldin verða á Hellu 18. ágúst n.k. verður haldið Héraðsmót HSK í starfsíþróttum. Keppt verður í dráttavélaakstri, pönnukökubakstri, jurtagreiningu og fuglagreiningu.  Keppni í dráttavélaakstri mun fara fram á opnu svæði við Dynskála (austan megin við veitingahúsið Kanslarann) og mun keppnin hefjast um kl:12.00.

Lesa nánar: Starfsíþróttir á Töðugjöldum á Hellu

 

Sannleikanum er hver sárreiðastur

Þann 30. júní sl. var verslunar- og skrifstofuhúsnæði á Hellu formlega tekið í notkun. Efnt var til nafnasamkeppni og varð nafnið „Miðjan“ hlutskarpast. Miðjan tengir saman tvær eldri byggingar, Suðurlandsveg 1 og 3.

Lesa nánar: Sannleikanum er hver sárreiðastur

 

Af sveitarstjónarmálum í Bláskógabyggð

Stundum langar mann að ráða meiru en maður raunverulega ræður. Stundum væri gott að geta haft meiri stjórn á hlutunum, eða öllu heldur geta haft vald til að koma í veg fyrir atburði, eins og þegar Íslandspóstur ákvað að nú væri tímabært að loka póstafgreiðslunni á Laugarvatni. En því miður ná völd sveitarstjórnarmanna ekki inn á borð ráðamanna í fyrirtækjum og stofnunum.

Lesa nánar: Af sveitarstjónarmálum í Bláskógabyggð

 

Spyr um pláss í leikskólum Árborgar

 

Á síðasta fundi  bæjarráðs Árborgar lagði  Eggert Valur Guðmundsson, fulltrúi S- lista fram nokkrar spurningar um leikskólamál í sveitarfélaginu.

 

Lesa nánar: Spyr um pláss í leikskólum Árborgar

 

Starfsmönnum Rangárþings ytra og samstarfsverkefnum þakkað vegna góðrar fjárhagsstöðu

Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2011 var staðfestur af hreppsráði 30. apríl 2012 og lagður fyrir sveitarstjórn.  Hann var tekinn til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar mánudaginn 7. maí 2012 og vísað til seinni umræðu en samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikning sveitarfélags á tveimur fundum í sveitarstjórn.

Lesa nánar: Starfsmönnum Rangárþings ytra og samstarfsverkefnum þakkað vegna góðrar fjárhagsstöðu

 

Ályktun Þjórsársveita með greinargerð

 

Eftirfarandi ályktun ásamt greinargerð er sett saman í framhaldi af fundi framkvæmdanefndar Þjórsársveita sem haldinn var í Þingborg 12. apríl 2012.

 

Lesa nánar: Ályktun Þjórsársveita með greinargerð

 

Deilt um kaup á nýjum bíl fyrir Hitaveitu Flúða

Á síðasta fundi sveitarstjórnar Hrunamannahrepps voru kynnt ný bílakaup veitustjórnar Hitaveitu Flúða.

Lesa nánar: Deilt um kaup á nýjum bíl fyrir Hitaveitu Flúða

 

Árborg frestar ákvörðun um úrsögn úr Skólaskrifstofu Suðurlands til 3. maí

Á fundi fræðslunefndar Árborgar í gær átti að taka ákvörðun um úrsögn sveitarfélagsins úr Skólaskrifstofu Suðurlands en hlutir Árborgar í skrifstofunni er um 47%.

Lesa nánar: Árborg frestar ákvörðun um úrsögn úr Skólaskrifstofu Suðurlands til 3. maí

 

Úrsögn úr embætti Skipulags-og byggingarfulltrúa Rangárþings bs.

Á stjórnarfundi í embætti Skipulags-og byggingarfulltrúa Rangárþings bs., 2. apríl sl., var lögð fram tillaga þess efnis að Rangárþing ytra segði sig úr byggðasamlaginu.  Í framhaldinu var óskað var eftir viðræðum samstarfssveitarfélaganna til að vinna að lausn málsins.

Lesa nánar: Úrsögn úr embætti Skipulags-og byggingarfulltrúa Rangárþings bs.

 

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL



Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson