Föstudagur, 24. maí, 2013
   
Letur

Sunnlenski matgæðingurinn 5. jan. 2012

 

Sigurfinnur Garðarsson á Selfossi er sunnlenski matgæðingurinn þessa vikuna

Gleðilegt ár allir saman. Ég er mjög þakklátur Hafsteini gleðisveini vini mínum fyrir að hafa skorað á mig :)Hér kemur uppskrift af einfaldri purusteik sem hentar öllum

1 stk. svín frá KRÁS

Skerið í puruna þversum, passa að skera ekki of djúpt.

Þerrið steikina, salti nuddað vel og vandlega í puruna og svo salt og pipar á alla steikina eftir smekk.

Ofninn stilltur á 100-120 gráður, steikin sett á grind eða í steikarpott.

Látið dambla í ofninum í 2 tíma + fer eftir því hvað svínið er stórt.

Hitinn er aukinn smám saman eftir því sem líður á steikartímann puran poppuð í lokin með því að stilla ofninn á 200+.

Sósa gerð af alúð og natni eftir smekk, mikilvægt að vera mjög svangur þegar sest er til borðs.

Meðlæti; rauðkál og Ora-grænar baunir og gott salat og ekki má gleyma kartöflunum hvort sem þær eru brúnaðar eður ei.

Klikkar aldrei!!

 

Læt svo fylgja með einn laufléttan brauðrétt með sem er tilvalinn yfir góðum Liverpool leik og köldum bjór.

Brauð skorið í teninga í eldfast mót

2 ostar bræddir í matreiðslurjóma Mexicoostur, hvítlauksostur eða villisveppa-ostur allt eftir smekk

1 rauð paprika

1 bréf skinka frá KRÁS

2 bréf pepperoni frá KRÁS

Slatti af brokkolí

ostur yfir. Haft í ofni á 180 gráður í ca 20 mín.

Að lokum vonast ég til að sunnlendingar allir prufi þetta sem fyrst.

Þá ætla ég að skora á Gunnar Jökul Guðmundsson gleðisvein og félaga að vera matgæðingur næstu viku. Ég veit til þess að hann er einn hafsjór af fróðleik um mat og eldamennsku. All right!!!!

 

Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson