Föstudagur, 24. maí, 2013
   
Letur

Sunnlenski matgæðingurinn 8. des. 2011

 

Guðrún Herborg Hergeirsdóttir á Selfossi er sunnlenski matgæðingurinn þessa vikuna

 

Ég get ekki annað en tekið áskorun systur minnar þrátt fyrir að vera ekki mjög hugmyndarík þegar kemur að eldamennsku. Ég luma þó á góðri uppskrift af pottrétti sem er góður sunnudagsmatur á aðventunni áður en ráðist er í reykt kjöt og sætindin.  Læt fylgja með brauð sem á vel við réttinn.

Lambapottur

4 lambaskankar eða 6 framhryggjarsneiðar

1 stór laukur

4 hvítlauksgeirar

1 dós niðursoðnir tómatar (mixaðir)

1-2 sellerístilkar

3-4 gulrætur

Krydd - Italian seasoning ca 1 msk.

Sítrónupipar, maldonsalt og pipar

Grænmetiskraftur eftir smekk

1 msk. tómatþykkni

1-2 lárviðarlauf

½ búnt steinselja

Kjöt brúnað, laukur og hvítlaukur látið krauma með. Þá er krydd og salt sett út í og síðan niðursneiddar gulrætur og sellerí.  Að lokum er tómatpúrran og niðursoðnu tómatarnir settir út í. Láta suðuna koma upp og malla þetta í einn og hálfan tíma.  Einnig mjög gott að setja þetta í eldfast mót með loki og láta malla í ofni í einn og hálfan tíma við 170 gráður. Áður en þetta er sett á borðið er steinseljan söxuð niður og sett út í réttinn.

Best er að borða þetta með kartöflumús og góðu brauði.

 

Ítalskt  brauð með pestó

600 gr hveiti

4 tsk þurrger (1bréf)

1 ½ dl mjólk

1 tsk. lyftiduft

1 tsk. salt

3 msk. sykur

70 gr smjör/smjörlíki

1 ½ dl volgt vatn

1 egg

4 msk grænt pestó

60 gr parmesan ostur (má sleppa)

Ögn pestó til að pensla brauðið með áður en það fer inn í ofn.

Allt þurrefni sett saman í skál, volg mjólk sett út í og hnoðað. Látið hefast stutta stund á hlýjum stað. Hægt að gera 2 lítil brauð úr uppskriftinni eða eitt stórt (tekur lengri tíma í ofninum). Gott að klippa skorur ofan á brauðið og strá smá grófu salti yfir.  Líka er mjög gott að setja ólívur eða sólþurrkaða tómata út í deigið.

Penslist með pestó, sett á bökunarpappír á plötu/grind og bakist í ca. 20-30 mínútur við 200 gráður. Gott að skvetta vatni í ofnskúffu undir grindinni sem brauðið er á og loka ofninum síðan. Þá verður brauðið stökkt að utan.

Þetta er mjög gott brauð við öll tækifæri, til dæmis með sósunni hérna að ofan  en líka eitt og sér með smjöri.

 

Ég hef heyrt miklar sögur af jólakonfektgerð þjálfara meistaraflokks kvenna í handbolta og skora því á hann, Sebastian Alexandersson að koma með eitthvað sætt og gott í næstu viku!

 


 

Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson